Ung vinstri græn
Pistlar

13.9.2009 Vésteinn Valgarðsson

Átta tesur

Ágústtesur þessar voru samdar og fluttar á flokksráðsfundi Vinstrihreyfingarinnar - Græns framboðs á Hvolsvelli 28.-29. ágúst 2009.

Ríkisstjórnarseta skiptir miklu, en til eru mál sem vega of þungt til að eftirgjöf sé ásættanleg.

1. Sá sem vill ekki ganga í Evrópusambandið sækir hvorki um aðild að því né kýs flokk sem gerir það.

2. Sá sem vill stöðva stóriðjustefnu lætur hvorki álversframkvæmdir í Helguvík halda áfram óáreittar né kýs flokk sem gerir það.

3. Sá sem lætur sér annt um jafnrétti kynjanna sker ekki niður kvennastörf á sama tíma og hann skapar karlastörf.

4. Sá sem trúir hægrimönnum trúir að kreppan stafi af siðferðisbresti, klaufaskap eða kynhormónum, en sósíalisti veit að kreppa er innbyggð í auðvaldsskipulagið og er hvort háð öðru. Leiðin út úr kreppunni liggur út úr auðvaldsskipulaginu.

5. Sá sem heldur með fjármálaauðvaldinu lætur skattborgara greiða  spilaskuldir þess og einkavæðir bankana aftur, en sá sem vill sjá hag almennings borgið hlífir heimilunum við óréttlátri eignaupptöku.

6. Sá sem hlítir ráðum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins byggir ekki upp neitt „norrænt velferðar“-neitt-neitt, heldur sker niður í opinberri þjónustu.

7. Sá sem sættir sig ekki við þjóðfélagsástandið byrjar á að kjósa umbótaflokk, en dugi það ekki stendur valið milli landflótta og byltingar.

8. Sá sem er í vinstristjórn framfylgir vinstristefnu, en stjórn sem framfylgir hægristefnu er ekki vinstristjórn. Hugsjónir eru ekki skiptimynt fyrir ráðherrastóla og hótanir um stjórnarslit koma ekki í stað endurgjalds fyrir eðlilegar málamiðlanir.

Vésteinn Valgarðsson

Senda grein

Athugasemdir (1)

  1. sharktoof skrifar:

    home insurance 152631 homeowners insurance quotations 8)) auto insurance quotes 4557 health insurance rates =PPP auto insurance rates anulj

    19.5.2010, kl. 23:39 | #

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)

Ung vinstri græn þiggja með þökkum athugasemdir við alla pistla en óska þess að athugasemdir séu málefnalegar. Allar athugsemdir eru á ábyrgð höfundur en Ung vinstri græn áskilja sér þó rétt til þess að fjarlægja athugasemdir sem þau telja ekki hæfar til birtingar.



Leita á vefnum



Eldri pistlar


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica