Fögnum!
Ung vinstri græn bjóða öllum félögum sínum og velunnurum til teitis í Friðarhúsi kl. 21:00 annað kvöld, 19. mars. Ung vinstri græn hyggjast fagna nýrri og glæsilegri heimasíðu hreyfingarinnar, www.vinstri.is, sem að fór í loftið í dag. Auk þess ætla ungliðar að hita upp fyrir landsfund Vinstri grænna sem hefst daginn eftir, föstudaginn 20. mars.
Tilefni til fögnuðar eru næg, því þrátt fyrir kreppu og leiðindi verðum við að líta á björtu hliðarnar. Ný heimasíða UVG, landsfundur handan við hornið, gott gengi Vinstri grænna í skoðanakönnunum og fjöldi góðra mála sem að ríkisstjórn VG og Samfylkingar leggur fram í þinginu, eru allt ánægjulegir áfangar sem ber að fagna. Ung vinstri græn sjá það sem sitt stærsta verkefni að veita kjörnum fulltrúum aðhald, en annað kvöld skulum við fagna og gleðjast með hvort öðru og brýna hvert annað fyrir baráttuna sem framundan er. Mikilvægustu kosningar í sögu lýðveldisins Íslands eru í næsta mánuði og nú er að duga eða drepast. Við hefjum baráttuna á því að þjappa okkur saman og gleðjast saman yfir því að vera ung, vinstrisinnuð og græn – og allt sem það inniber!
Sjáumst í Friðarhúsi!
Formaður Ungra vinstri grænna

