Typpapólitíkin í Sjálfstæðisflokknum
Í gær lýsti Ingibjörg Sólrún Gísladóttir því yfir að Samfylkingin ætlaði sér að standa við landsfundarsamþykkt sína og gæta jafnræðis milli kynjanna á ráðherrastólum þeim sem flokkurinn fengi í sinn hlut. Lesirðu frétt sem slíka á fréttasíðunni mbl.is, er óhjákvæmilegt að þú rekist á athugasemdir meðlima alræmds þjóðfélagshóps sem í daglegu tali eru nefndir „Moggabloggararnir“. Ef þú stingur tánum í músagildruna, þ.e.a.s. freistast til að lesa moggabloggin, veltur yfir þig holskefla af þykjustujafnréttissinnum sem væla yfir þessum yfirlýsingum Ingibjargar Sólrúnar. „Hvaða kynjakjaftæði er þetta eiginlega? Hæfasti einstaklingurinn á auðvitað að hljóta ráðherrasæti, burtséð hvers kyns hann er!“ baula bloggararnir eins og sauðnautin sem þeir eru.
Fátt hefur hins vegar heyrst frá þessum moggabloggurum um rassinn sem vermir ráðherrrastól heilbrigðisráðuneytisins. Sá er í eigu Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, stjórnmálafræðings sem hefur aðallega starfað hjá fjármálafyrirtækjum og hefur lítil afskipti haft af heilbrigðismálum fyrir utan setu í umhverfis- og heilbrigðisnefnd Reykjavíkur 1998-2002. Guðlaugur hefur setið á þingi frá árinu 2003. Með því að skjóta ráðherrastólnum undir rassinn á Guðlaugi er augljóslega verið að ganga framhjá hæfari einstaklingi innan Sjálfstæðisflokksins, Ástu Möller. Ásta er hjúkrunarfræðingur að mennt og hefur unnið sem slíkur á Borgarspítalanum, auk þess að gegna þar stjórnunarstöðum. Hún hefur ennfremur kennt hjúkrunarfræði og gegnt formennsku Félags háskólamenntaðra hjúkrunarfræðinga og Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Hún hefur setið í fjölmörgum nefndum og ráðum um heilbrigðismál og lagt á þau áherslu sem alþingiskona, sem hún hefur verið frá árinu 1999 utan 2003-2005.
Konur eru 1/3 þingflokks Sjálfstæðiflokksins en hins vegar er einungis ein Sjálfstæðiskona ráðherra í nýrri ríkisstjórn. Af sex ráðherrastólum mega Sjálfstæðiskonur gera sig góðar með einn, og þurfa að horfa upp á það að gengið sé framhjá hæfri konu fyrir ekki eins hæfan karl. Sú réttlæting að Guðlaugur Þór fái ráðherrastól vegna þess að hann leiði lista stenst ekki þegar að litið er til þess að fyrstu þingmenn NV-kjördæmis og NA-kjördæmis fá hvorugur ráðherrastól. En maðurinn sem 18% kjósenda Sjálfstæðismanna strikuðu út og endaði í þriðja sæti á sínum lista, Björn Bjarnason, situr sem fastast á sínum stól.
Það er ljóst að formaður Sjálfstæðisflokksins hefur gengið framhjá hæfasta einstaklingnum í þessu tilfelli og það er typpalykt af þessu máli. Súr, ógeðsleg typpafýla. Og þykjustujafnréttissinnarnir þegja, því það hentar þeim ekki að tala illa um það þegar að körlum er hyglt á kostnað kvenna, heldur bara þegar um er að ræða aðgerðir sem miða að raunverulegum jafnrétti kynjanna. Ég vona hins vegar að Sjálfstæðiskonur sýni nú dug og þegi ekki, heldur mótmæli þessum ömurlegu vinnubrögðum. Því ef það er hæfasti einstaklingurinn sem að fær það sem hann á skilið hjá Sjálfstæðisflokknum, þá er það augljóst mál að það er orðinn afskaplega eftirsóttur hæfileiki að vera með typpi, og þá er spilið tapað fyrir konur innan Sjálfstæðisflokksins.
