Ung vinstri græn
Pistlar

9.5.2007 Steinunn Rögnvaldsdóttir

Kjósum jafnrétti!

Á síðasta kjörtímabili hafa þingmenn Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs lagt fram fjöldan allan af frumvörpum til að stuðla að jafnrétti kynjanna og kvenfrelsi. Því miður er af nógu að taka í þeim málaflokki. Sem dæmi má nefna að kynbundinn launamunur hefur ekkert minnkað í 13 ár, dómar fyrir kynferðisafbrot eru í engu samhengi við alvarleika brotanna. Til að bæta gráu ofan á svart þá brutu tveir ráðherrar jafnréttislögin í á kjörtímabilinu. Annar þeirra var Árni Magnússon þáverandi félagsmálaráðherra, en ráðuneyti hans ber einmitt ábyrgð á jafnréttismálunum, og Björn Bjarnason dómsmálaráðherra, en ráðuneyti hans ber ábyrgð á því að lögum landsins sé framfylgt.

Til að stuðla að jafnrétti í atvinnumálum hafa Vinstri-græn m.a. lagt fram frumvörp um afnám launaleyndar, eflingu Jafnréttisstofu og auknar heimildir stofnunarinnar til að sinna eftirliti. Við höfum jafnframt lagt fram frumvarp um bætt starfsumhverfi kvennahreyfingarinnar og annarra hópa sem vinna að jafnari stöðu kynjanna á Íslandi. Þá höfum við kynnt á Alþingi hugmyndir okkar að aðgerðum til að jafna hlutfall kynjanna í stjórnum, nefndum og ráðum hins opinbera, án þess að slaka á nokkurn hátt á hæfniskröfum.

Kvenfrelsismál eru mannréttindamál. Þingmenn Vinstri-grænna hafa lagt fram frumvörp sem ætlað er að taka á mansali, festa í lög svokallaða fórnarlamba- og vitnavernd til handa fórnarlömbum mansals og tryggja réttarstöðu þeirra, heimila lögreglu að fjarlægja ofbeldismann af heimilinu og setja á hann nálgunarbann, banna kaup á vændi, tryggja réttarvernd kynfrelsis með því að fella út verknaðarlýsingu í nauðgunarákvæði hegningarlaganna, banna umskurð kvenna og stúlkubarna og svona væri áfram hægt að telja.

En þegar að starfað er í stjórnarandstöðuflokki, þá er því miður oftast hægara sagt en gert að koma frumvörpum í gegn. Raunin er sú að flest þessi góðu og þörfu frumvörp hafa týnst í nefnd eða bókstaflega verið hafnað af stjórnarflokkunum. Í vor náðist áfangasigur þegar að fyrningarfrestur í alvarlegum kynferðisafbrotum gegn börnum var afnuminn, en það hefur verið baráttumál stjórnarandstöðunnar í mörg ár. Til þess að að þessar endurbætur yrðu á kynferðisafbrotakaflanum í íslenskum hegningarlögum, urðu Vinstri-græn að falla frá kröfu sinni um að kaup á vændi yrðu gerð refsiverð, annars hefðu stjórnarflokkarnir dregið stuðning sinn við frumvarpið í heild sinni til baka. Þetta voru Vinstri-grænum og fleirum mikil vonbrigði, en baráttunni er hvergi nær lokið.

Kvenfrelsi er ekki bara kvennamál, heldur líka karlamál. Allir almennilegir menn vilja að konurnar sem þeir elska; eiginkonurnar, kærusturnar, systurnar, mæðurnar, vinkonurnar og dæturnar, njóti jafnréttis í samfélaginu og séu öruggar. Vinstrihreyfingin - grænt framboð er flokkur fólks sem veit að jafnrétti hefur ekki verið náð í samfélaginu og við ætlum ekki bara að sitja á rassinum og bíða eftir að það gerist að sjálfu sér.

Konur og karlar, við skulum ekki lengur biðja um jafnrétti. Við skulum kjósa það næsta
laugardag.

Steinunn Rögnvaldsdóttir

Senda grein


Leita á vefnum






 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica