Hver er grænn í gegn?
Sigurður Kári Kristjánsson, er staðalímynd hins unga sjálfstæðismanns. Hann er karlmaður í flottum jakkafötum en fyrir sakir óþarflega mikils hroka kemur hann ekkert sértaklega vel fyrir. Hann svarar aldrei spurningum eða gagnrýni sem að honum er beint. Í stað þess bregst hann nær alltaf við með spurningum sem hafa lítið eða ekkert með málin að gera.
Á dögunum reyndi Sigurður Kári að ljúga því að sjónvarpsáhorfendum að Sjálfstæðisflokkurinn væri grænn í gegn. Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, frambjóðandi Vinstri-Grænna, sá, eins og allir býst ég við, strax í gegnum lygina og kom upp um hann. Hún benti máli sínu til stuðnings á nokkur af þeim níðingsverkum gagnvart náttúrunni og umhverfinu sem Sjálfstæðisflokkuinn hefur framið. Sigurður Kári ákvað að vera staðalímyndinni trúr og svaraði henni með bullspurningu. Spurningin var eitthvað á þessa leið: ?Heldur þú að Vinstri-Græn sé með einhvern einkarétt á umhverfismálum, heldurðu að okkur sé ekki líka annt um umhverfið og náttúruna??
Auðvitað er enginn flokkur með einkaleyfi á neinum málaflokki. Vinstri-Grænum er hins vegar mjög annt um umhverfismálin. Þess vegna þykir okkur það sérstaklega sorglegt að enginn annar stjórnmálaflokkur á Alþingi hafi staðið almennilega með okkur í grænu málunum undanfarin tvö kjörtímabil. Vinstri-Græn eru ekki með einkarétt á umhverfismálum en maður gæti stundum haldið að hinir flokkarnir teldu svo vera.
Eftir að hafa staðið ein í baráttunni á sviði íslenskra stjórnmála í átta ár er farið að rofa aðeins til. Flokkar sem áður börðust gegn okkur lofa því nú að standa með okkur. Enn hefur ekki reynt á þessi loforð. Þangað til að það gerist er besti mælikvarðinn á trúverðugleika íslenskra stjórnmálaflokka í umhverfismálum afstaða til byggingu Kárahnjúkavirkjunar, sem er án efa langstærsta umhverfismál Íslandssögunnar.
Í atkvæðagreiðslu á Alþingi greiddu allir þingmenn Vinstri-Grænna atkvæði gegn virkjuninni eftir að hafa háð harða baráttu gegn henni á þinginu. Að auki greiddu aðeins tveir þingmenn Samfylkingarinnar atkvæði gegn virkjuninni og einn þingmaður Frjálslyndaflokksins.
Þegar kom að því að greiða atkvæði um málið í borgarstjórn Reykjavíkur þá varð aðeins mjórra á munum. Fulltrúar Vinstri-Grænna og fulltrúi Frjálslyndaflokksins greiddu atkvæði gegn virkjun, eins og tveir fulltrúar Samfylkingarinnar. En Ingibjörg Sólrún Gísladóttir greiddi atkvæði með Kárahnjúkavirkjun og Dagur B. Eggertsson sem sat hjá. Í báðum atkvæðagreiðslum greiddu allir fulltrúar Framsóknarflokksins atkvæði með virkjun. Það sama má segja um fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, nema Katrínu Fjelsted sem sat hjá.
Allir flokkar á Alþingi nema Vinstri-Græn studdu eyðilegginguna á hálendinu fyrir Kárahjúkavirkjun. Af verkunum skulum við dæma þá.
Auður Lilja Erlingsdóttir
