Ung vinstri græn
Pistlar

5.6.2006 Björn Reynir Halldórsson

Hver þarf Framsóknarflokkinn?

Nú um þessar mundir glímir Framsóknarflokkurinn við mikið fylgistap bæði á landsvísu og í Reykjavík. Halldór Ásgrímsson hefur tekið á sig skellinn og ætlar að segja af sér sem formaður flokksins. En er fylgistap Framsóknarflokksins hans sök?

Undirritaður mun ekki sakna Halldórs úr íslenskum stjórnmálum. Hann hefði, ásamt Davíð Oddssyni, átt að segja af sér fyrir svik við íslensku þjóðina er hún var sett á lista hinna viljugu þjóða. En afsögn Halldórs verður Framsóknarflokknum ekki til bjargar. Fólkið í landinu er farið að sjá í gegnum flokkinn sem stendur ekki fyrir neitt, nema helst mengandi stóriðjustefnu. Engin þörf er á honum í íslenskum stjórnmálum nú til dags.

Vandræði Framsóknarflokksins virðast núna hafa mikil áhrif á rískisstjórnina og enn ein stólaskiptin eru framundan. Ríkisstjórnin var þreytt er hún hóf störf á þessu kjörtímabili og þrátt fyrir allar stólaskiptingarnar er hún enn þreytt og ringulreið einkennir hana nú til dags.

Tími Halldórs Ásgrímssonar er liðinn. Tími rískisstjórnarinnar er liðinn. Tími Framsóknarflokksins er liðinn. Nú er tími fyrir vinstristjórn.

Björn Reynir Halldórsson

Senda grein


Leita á vefnum






 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica