Ung vinstri græn
Pistlar

24.11.2005 Torfi Stefán Jónsson

Varnir Íslands, hvað ber að gera?

Varnarmál landsins virðast vera í hundunum. Herinn segist vilja fara og sama hversu oft ráðamenn þjóðarinnar fara á hnén, samt vill hernámsherinn ekki lengur vera hér. Okkar síðasta von er að ríkið verði tilbúið til þess að borga með hernum, eða þessum fjórum þotum sem talið er nauðsynlegt að hafa.

Auðvitað myndi það gera gæfumuninn að hafa fjórar þotur hér á landi, að vísu oftar en ekki óvopnaðar, en það má nú alltaf skella á einni, tveimur bombum á vélarnar. Þessar vélar gætu stoppað allar þær óvinsamlegu þjóðir sem umlykja okkur eins og t.d.:Noreg sem er nú að fara endurnýja flugflota sinn upp á nokkra milljarða, klárt mál að þessum þotum er beint gegn Íslandi. Noregskonungur hefur ekki gleymt að hann réði landinu hér í den. Danir eiga kafbáta, að vísu ryðgaða og dísilknúna en þeir hafa eflaust hug á að endurheimta N-Atlantshafsveldið sitt, við yrðum eins og perlan í krúnu þessa forna nýlenduveldis. Enda eiga þeir líka harma að hefna þar sem við virðumst vera að kaupa Kaupmannahöfn eins og hún leggur sig. Skotar eru nú orðnir stórhættulegir, greinileg innrás yfirvofandi. Byrjuðu á því í fyrradag að klippa á Far-Ice-sæstrenginn til þess að gera landið sambandslaust við umheiminn.

Já, það eru ógnir allt í kringum okkur.

Torfi Stefán Jónsson

Senda grein


Leita á vefnum






 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica