Ung vinstri græn
Pistlar

7.9.2005 Dögg Proppé Hugosdóttir

Réttlæti í Reykjavík

Birtist í Morgunblaðinu 7.september.

Það er hreint út sagt frábært að Vinstri græn ákváðu að bjóða fram sér í borgarstjórnarkosningunum í Reykjavík næsta vor. Mikið lifandi skelfing verður það gott fyrir Reykvíkinga að fá skýran valkost að velja til stjórnar í Reykjavík. Það er komin tími til að brjóta upp valdþreytuna sem var farin að einkenna R-listann. Næstu kosningar ættu að leiða til uppstokkunar í borgarmálunum, hleypa nýju fólki inn og gæluverkefnunum út. Þar vísa ég til dæmis til risarækjueldis Alfreðs og þess konar vandræðalegra bletta á stjórn borgarinnar. Ánægjulegt verður að spillingakarlar fái ekki lengur að skáka í skjóli Vinstri grænna. Ekki hefur Sjálfstæðisflokkurinn ferskan valkost upp á að bjóða. Þar hefur sama mykjan verið í poka í 12 ár og núna lítur út fyrir að skipta eigi um plast utan um mykjupokann, svokallað Gíslaplast rétt fyrir kosningar. Nýr valkostur?

Dögg Proppé Hugosdóttir

Senda grein


Leita á vefnum






 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica