Hópur án málsvara
Ísland er meðal ríkustu þjóða í heimi og ráðamenn hér á landi státa sig við hvert tækifæri sem gefst af öflugu velferðarkerfi og stuðningskerfi handa þeim sem minna mega sín. Miðað við allar þær bjargir sem við höfum, alla fjármunina og góðan vilja helstu ráðamanna (a.m.k. á tyllidögum) er sorglega staðreyndin sú að hér á landi finnast enn hópar sem eiga sér fáa sem enga málsvara og búa við vægast sagt ómannúðlegar aðstæður.
Heimilislausir er gott dæmi um slíkan hóp en rétt rúmlega hundrað manns eru flokkaðir heimilislausir hér á landi samkvæmt þrengstu skilgreiningu, þ.e. rúmlega hundrað einstaklingar sofa úti eða nýta sér þjónustu gistiskýla. Enn meiri fjöldi er í raun heimilislaus ef tekið er tillit til allra þeirra sem búa við ótryggt húsnæði en ná að þrauka dag frá degi með því að gista hjá vinum og kunningjum.
