Ung vinstri græn
Pistlar

17.11.2008 Steinunn Rögnvaldsdóttir og Jan Eric Jessen

Engar kreddur

Fundarröð okkar Ungra vinstri grænna um Evrópusambandið hefur vakið talsverða athygli undanfarna daga. Tími okkar hefur að vísu aðallega farið í að taka á móti og virkja allt það nýja fólk sem nú gengur til liðs við okkur og vill taka þátt í að móta nýtt samfélag á rústum nýfrjálshyggjunnar. Þetta fólk er eins og aðrir í UVG drifið áfram af hugsjónum um jafnrétti, umhverfisvernd, frið og félagslegt réttlæti í velferðarsamfélagi. Þessar hugsjónir snúast ekki um ríkjabandalög eins og ESB, þótt það megi vel hugsa sér að ríkjabandalög geti hjálpað til við að móta samfélag á þeirra grunni.

Þess vegna er afstaða Ungra vinstri grænna til Evrópusambandsins mjög einföld. Ef aðild Íslands að sambandinu færði okkur nær slíku samfélagi þá væru UVG fremst í flokki þeirra sem vilja ganga þar inn. En hingað til hefur það ekki verið mat þeirra sem taka þátt í starfi UVG að Evrópusambandið stuðli að framgangi þessara hugsjóna. Þvert á móti hefur okkur fundist að Evrópusambandið snúist um hagsmuni auðjöfra og stórfyrirtækja, að það standi í vegi fyrir framförum í umhverfismálum, sé ólýðræðislegt skriffinnskubákn og stuðli að átökum og ófriði á borð við loftárásirnar á Júgóslavíu 1999.

En Evrópusambandið gæti auðvitað breyst, og kannski hefur það nú þegar breyst. Mat okkar á ESB gæti líka hafa verið rangt, enda hefði aðild að Evrópusambandinu svo miklar breytingar í för með sér að erfitt er að ná góðri yfirsýn yfir málið í heild sinni. Við í UVG erum ekki alvitur frekar en þeir fylgjendur ESB-aðildar sem nú tala eins og innganga leysi öll vandamál íslensks samfélags í einni svipan. Við teljum hins vegar að það sé varhugavert að tala um ESB sem töfralausn á þeim vanda sem íslenskt efnahagslíf glímir nú við, enda trúum við ekki á töfralausnir.

Þess vegna segjum við: Engar kreddur. Við eigum að taka ákvörðun um ESB á grundvelli hugsjóna en ekki bábilja eins og þeirrar að Evrópusambandsandstæðingar séu einangrunarsinnar eða að ekki sé hægt að standa utan sambandsins. Þá ákvörðun verður að taka á grundvelli upplýstrar og rökstuddrar afstöðu og þess vegna þurfum við að byrja með hreint borð og opinn huga. Ung vinstri græn munu halda áfram að skoða Evrópusambandið á grundvelli hugsjóna okkar og við bjóðum ungt fólk sem deilir hugsjónunum með okkur hjartanlega velkomið á fundina til að ræða við okkur um Evrópusambandið á grundvelli þessara hugsjóna.

Steinunn Rögnvaldsdóttir og Jan Eric Jessen
Greinin birtist í Morgunblaðinu 17. nóvember 2008

Senda grein


Leita á vefnum






 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica