Pistlar
...sem þekkir hvorki sverð né blóð
Ekki þarf að fara langt, hvorki í rúmi né tíma, til að finna ófrið í heiminum. Þau lönd sem við kjósum að bera okkur saman við hafa einhvern tímann lent í stríði og þurft að kljást við eftirmála þess. Meira að segja í okkar ofvernduðu og offeitu Evrópu þurfum við ekki að fara langt aftur til að finna alvöru ófrið, til dæmis á Írlandi, í fyrrum Júgóslavíu og gömlu Sóvétríkjunum. Fólk sem hefur lifað stríð getur aldei lifað í vissunni um að það endurtaki sig ekki, að einn daginn hefjist loftárásirnar bara enn og einu sinni og ónefndar leyniþjónustur handtaki fjölskyldumeðlimi og pynti þá.
UVG
