Ung vinstri græn
Pistlar

14.1.2008 Auður Lilja Erlingsdóttir og Elías Jón Guðjónsson

Vinsamlegast brjótið ekki lög


Um miðjan janúar tekur Alþingi aftur til starfa. Eitt mikilvægasta málið sem bíður afgreiðslu er jafnréttisfrumvarpið svokallaða, heildarendurskoðun á lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla. Sérstaklega er málið mikilvægt því sjaldan hefur staðið jafnmikill styr um jafnréttismál og síðustu mánuði. Fólk sem hefur vogað sér að krefjast aðgerða til að stuðla að auknu jafnrétti kynjanna hefur undanfarið mátt sæta fjandsamlegri andstöðu, verið kallað öllum illum nöfnum og jafnvel verið hótað aðgerðum til að lækka í þeim rostann eða þagga niður í þeim. Hótað fyrir það eitt að tala fyrir hugsjónum sínum.

Markmið hinnar nýju löggjafar er að færa okkur nær kynjajafnrétti en ljóst má vera að núverandi löggjöf hefur ekki skilað tilætluðum árangri. Mikill kynbundinn launamunur er enn til staðar þrátt fyrir að gildandi lög kveði á um að konur og karlar skuli njóta sömu kjara fyrir sambærileg störf. Fyrir rúmu ári kynnti þáverandi félagsmálaráðherra niðurstöður könnunar sem sýndi að óútskýrður launamunur kynjanna hafði ekki haggast í tólf ár. Auk þessa virðast konur sífellt reka sig á glerþak þegar þær sækjast eftir auknum frama og áhrifum.

Hvað veldur þessari stöðnun? Í okkar huga er ljóst að Jafnréttisstofu hefur ekki verið gert kleift að sinna því ábyrgðarhlutverki sem henni er falið. Ef staða Jafnréttisstofu er borin saman við stöðu Fjármálaeftirlitsins eða Samkeppniseftirlitsins sést það svart á hvítu hver forgangsröðunin hefur verið í íslensku samfélagi undanfarin ár. Hvar eru til að mynda úrræði Jafnréttisstofu til að tryggja að farið sé að úrskurðum stofnunarinnar?

Telja stjórnvöld ásættanlegt að setja á fót stofnun sem hefur það hlutverk að framfylgja lögum án þess að veita henni nein raunveruleg úrræði til þess? Í dag getur Jafnréttisstofa aðeins sent fyrirtækjum og stofnunum sem brjóta jafnréttislög kurteislegt bréf þar sem þau eru vinsamlegast beðin um að brjóta ekki landslög.

Nú liggur sem betur fer fyrir frumvarp þess efnis að Jafnréttisstofa fái tæki til að sinna lögbundnu hlutverki sínu með eðlilegum hætti. Fyrir hönd stjórnar Ungra vinstri grænna lýsum við yfir fullum stuðningi við frumvarpið og skorum á þingmenn Samfylkingarinnar að standa í lappirnar og koma þessu löngu tímabæra frumvarpi í lög. Samfylkingin hefur nægan stuðning á Alþingi til þess að greiða götu frumvarpsins án þess að veikja það með því að þóknast afturhaldssamri afstöðu íhaldsflokksins.

Auður Lilja Erlingsdóttir og Elías Jón Guðjónsson
Greinin birtist áður í Morgunblaðinu þann 14. janúar 2008

Senda grein


Leita á vefnum






 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica