Ung vinstri græn
Pistlar

23.12.2010 Snærós Sindradóttir

Til barnanna sem báðu ekki um stríð

snaerosss

„War is over, if you want it“ söng Lennon og enn stenst textinn tímans tönn. Hængurinn er sá sami og áður, vilji yfirvalda til að stöðva stríðið er ekki nægilegur og strengjabrúðumeistarar stórveldanna höggva enn í herðar niður með græðgisglampa í augunum. Stríð snýst alltaf um peninga, aldrei um mannúð eða frelsun þjóða. Það er lygin sem við, hið vestræna samfélag, gleypum oní kok í hvert sinn sem Bandaríkin byrja að sprengja aftur í nafni friðar og frelsis.

Í því fyrirmyndarsamfélagi sem mig dreymir um byltir fólk samfélögum, það er óþarfi að hengja stjórnmálamenn fyrir hvert einasta feilspor sem þeir stíga en stuðningur við stríð, eða bein þátttaka í morðum á saklausu fólki er ekki feilspor. Í því fyrirmyndarsamfélagi lætur lýðurinn sig frið í öllum löndum varða og gerir ekki upp á milli síns eigin húðlitar og annarra þegar þess er krafist að þjóðir hætti að drepa. Í því samfélagi vinna ráðamenn fyrir fólkið og hræðast þá flóðbylgju sem lýðurinn getur framkallað ef þeir, undirgefnir og þægir, styðja stríð annarra þjóðhöfðingja. Doði hins vestræna samfélags gerir það að verkum að enn getur valdið seilst í vasa borgara sinna og borgað fyrir byssur, sprengjur og skriðdreka.

Stríð spyr ekki um árstíma eða kristnar eyðsluorgíur. Stríð spyr ekki hvort það séu jól eða páskar. Hundruðþúsunda hermanna eyða nú hátíðinni fjarri fjölskyldum sínum og í stað þess að þeir sem heima sitji rísi upp gegn stjórninni og krefjist þess að ástvinir þeirra séu sendir heim berja stórveldin í brjóst sér og þakka guði fyrir matinn sem hið sívaxandi hagkerfi færir þeim. Tindátunum er svo þakkað fyrir að berjast fyrir þenslunni og óskað velfarnaðar í árásunum sem þeir eiga framundan.

Enn fleiri börn eru látin, enn fleiri börn liggja á ömurlegum sjúkrahúsum og bíða þess að enda í nafnlausri gröf. Allt í nafni frelsisins. Til þeirra sendi ég kveðjur mínar og skæli jafnvel nokkrum tárum þeim til heiðurs. Það er vegna þeirra sem ég mun ekki hvílast í baráttu minni gegn stríði og mun aldrei hætta að fordæma aðgerðir stórveldanna sem einskis svífast. Ég neita að dofna með meirihluta þeirra sem búa í velmegunarríkjum, mér er skítsama hvort það séu páskar, afmæli eða jól – börnunum mun ég aldrei gleyma.

Senda grein


Leita á vefnum






 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica