Ung vinstri græn
Pistlar

14.10.2010 Jan Eric Jessen

Að taka þátt

Jan Eric Jessen

Ég verð mjög oft var við það viðhorf fólks að stjórnmál séu afar óáhugaverð og að fólk nenni ekki að fylgjast með þeim. Margir tala um að þeir séu löngu hættir að fylgjast með stjórnmálum, t.a.m. vegna þess að stjórnmál á Íslandi séu orðin að algjörri vitleysu eða vegna þess að íslenskir stjórnmálamenn hafi brugðist og það sé ekki mark á þeim takandi.

Mér þykir alltaf jafn sárt að verða vitni að fólki lýsa viðhorfum sem þessum. Stjórnmál snúast nefnilega um það hvernig samfélag við viljum byggja og snerta líf og kjör hvers einasta einstaklings, hvort sem honum kunni að líka það betur eða verr. Stjórnmál eru sameiginlegur vettvangur fólks til að takast á við verkefni sem samfélagið í heild sinni þarf að glíma við. Stjórnmál fjalla að miklu leyti um það hvaða forgangsröðun við sem samfélag við viljum hafa að leiðarljósi; hvort við viljum frekar hækka skatta á tóbak eða skerða barnabætur; hvort við teljum brýnna að tryggja jafnrétti meðal fólks eða standa vörð um launaleynd.

Það er að mínu viti afar brýnt að ungt fólk taki þátt í þjóðfélagsumræðunni og láti skoðanir sínar í ljós. Þannig hjálpar það til við að reisa nýtt Ísland úr rústum þeirrar nýfrjálshyggjustefnu sem hrundi í höfuðið á okkur fyrir um tveimur árum síðan. Þannig er best tryggt að hagur ungs fólks sé hafður að leiðarljósi við mótun samfélagsins. Nú er þörf fyrir nýjar hugmyndir og þátttöku allra við uppbygginguna sem framundan er.

Það eina sem þarf til að hefja þátttöku í stjórnmálastarfi er skoðun. Ung vinstri græn taka öllum nýjum þátttakendum í starfi hreyfingarinnar fagnandi og vonast til þess að sem flestir mæti á landsfund UVG 15. og 16. október.


Jan Eric Jessen
höfundur er formaður Ungra vinstri grænna
greinin birtist í Ávarpi UVG 2010


Senda grein


Leita á vefnum






 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica