Hvað er vinstrimennska?
Vinstrimennska er að mínu mati lífstíll um sanngirni frekar en stjórnmálaskoðun. Ég hef margsinnis átt í rökræðum við menn sem sjá kommúnisma(þ.m.t sósíalismi) sem eitthvað illt kerfi, þeir benda á einræðisríkin Austur-Þýskaland, Kúbu og Norður Kóreu. Þeir draga fram þá ályktun að hugmyndin kommúnismi sé falleg hugmynd en virkar ekki og mun aldrei virka. Ég er sammála þeim að hugmyndin sé falleg en hvort hún virki eða ekki er undir okkur sjálf komin. Það mun kannski aldrei verða til nein útópía en við getum ekki lagt árar í bát og gefist upp á að þroskast og læra. Thomas J. Watson sagði eitt sinn „It is better to aim at perfection and miss, than to aim at imperfection and hit it“ sem merkir í raun að við eigum að setja markið hátt í lífinu í stað þess að sætta okkur við meðalmarkmið. Eigum við að sætta okkur við heim þar sem 1% ríkustu menn í heiminum eiga 40% af efnahagi heimsins? Heim þar sem tækifæri til góðrar menntunnar og heilbrigðisþjónustu fer síminnkandi hjá verkamannastéttinni? Heim þar sem drifkraftur mannsins er öfund og græðgi? Heim þar sem girðingin er gerð heilög hvort sem það sé milli menningarkima, landa, stétta eða kynja?
Ég veit ekki um ykkur en ég er tilbúinn að berjast til síðasta blóðdropa fyrir betri heimi, af því ég veit maðurinn er góð skepna sem er forvitin og vill vel. Helsti orsakavaldur fyrir öllu illu í heiminum er öfund og græðgi - það má rekja einelti og hatur til græðgi og öfundar. Ég gæti skrifað langa grein um af hverju fólk verður eigingjarnt og gráðugt, í grunnin er það fyrst og fremst samfélagið sem venur fólk á þessa hegðun.
Setjum nú andstæðuna við samfélagshyggju, einstaklingshyggju, aðeins undir stækkunnargler. Ég spyr, er einstaklingshyggja og frelsi einstaklingsins í samfélaginu í raun frelsi? Áður en ég svara þessari spurningu verðum við að vita, hvað frelsi er. Sem dæmi; er það frelsi að fá skilyrðislaust byssuleyfi, kaupa vélbyssu, fara þar sem fjölmenni er saman komið og hefja skothríð í opinn fjöldann? Ef þessi skotmaður fengi svo ábendingu frá vel gefnum manni þess efnis að það að skjóta á aðra menneskju sé bannað, gæti skotmaðurinn svarað „ég borgaði fyrir byssuna fyrir mínum harðþénuðu peningum, ég er frjáls einstaklingur í frjálsu samfélagi, ég má gera það sem mér sýnist, ef mér finnst þetta athæfi vera mér til skemmtunnar þá á ég fullann rétt á að halda því áfram“. Ef grannt er skoðað, er þessi skotmaður líkur peningabröskurum nútímans. Fengist skotleyfi á saklausar manneskjur munu þeir skjóta ef það er í þeirra hag, en hér er byssan notuð sem líking fyrir peningafrelsi. Ég álykta að allir þeir sem sýna auðmýkt og samúð fyrir nágunganum sjái að einstaklingshyggja er afl sem hefur ekki og mun ekki nýtast mannkyninu í annað en óréttlæti.
Aristóteles sagði: lög er regla. Á skjaldamerki lögreglunnar stendur „með lögum skal land byggja“. Þegar á botninn er hvolft, erum við ekki mest frjáls þegar við elskum og erum hamingjusöm? Í stað þess að hugsa um frelsi einstaklingsins sem eitthvað fyribæri sem lög og stjórnvöld standa fyrir er rétt að taka eitt skref aftur og íhuga hversu heimskulegt það hljómar. Frelsi er hugarástand, en það er bara hvernig við upplifum okkur sjálf að við teljum okkur ófrjáls. Sem dæmi fæddist ég með tvær hendur sem veita mér líkamlegt frelsi, ég er allavega frjálsari en sá sem fæðist handalaus en minna frjálsari en sá sem hefur 3 hendur(ef þannig má að orði komast). Annað dæmi; við gætum upplifað okkur svo hömluð í samgöngum að við komumst varla yfir á aðra reikistjörnu hvað þá í annað sólkerfi, rétt eins og svampurinn í sjónum kemst varla frá einum steini á annan.
En frelsi eitt og sér er ekki nóg, frelsi og hamingja er ekki sami hluturinn. Það eru til mörg dæmi um fólk sem hefur mikið frelsi en enga hamingju, eins og söngvarinn Kurt Kobain hafði eða þá rónar. Ef út í það er farið eru þeir aldrei frjálsir vegna þess hversu algengt er að þeir geti ekki losnað við ákveðna óhamingju (smbr. frelsi er undir okkur komið).
Við verðum öll sem eitt að standa saman gegn græðgi, gegn öfund, gegn óréttlæti, gegn misskiptingu, gegn stríði, gegn fáfræði, gegn kúgun og gegn skorti á lýðræði! Það er möguleiki fyrir Ísland og allt mannkynið að haldast í hendur og standa saman í blíðu og stríðu, þess vegna megum við ekki láta byltingarandann gleymast. Hvernig vilt þú að framtíðin muni eftir þér; sem gráðugu svíni eða hetju sem stóð upp og barðist fyrir réttlæti og friði í heiminum?
Hlöðver Sigurðsson
höfundur situr í stjórn UVG á höfuðborgarsvæðinu
