Varðandi öfgamenn
Okkur er talið trú um að fyrir tæplega níu árum hafi hópur af öfgamúslimum
valdið geysilega miklum skaða í Bandaríkjunum. Afleiðingar
þessa mannskæðu árása voru ný alda af tortryggni gagnvart öfgamönnum
og voru margir sem aðhylltust sömu trúarbrögð taldir með í þeim hópi.
Öfgamenn eru sagðir lokaðir í eigin heimi og úr öllu sambandi við
raunveruleikann. Siðferði hefur allt annað gildi fyrir þá og
tilgangurinn helgar algjörlega meðalið. Skiljanlega er hægt að vekja
upp rödd tortryggninar til þeirra sem virðast ekki beita heilbrigðri
skynsemi eða gagnrýnni hugsun í gjörðum sínum.
En hví að nema staðar við trúarlega öfgamenn? Það er annar hópur
öfgamanna sem hefur valdið mun meira tjóni á Íslandi. Þessir
einstaklingar ganga ekki sérstaklega um með krossa utan um hálsa sína
eða klæða konur sínar í búrkur. Trúarrit þeirra er ekki ævaforn
skrudda, heldur kemur það út í hverri viku stútfullt af nýjum
upplýsingum. Um er að ræða nýfrjálshyggju postulana sem ganga um í
jakkafötum og lesa viðskiptablaðið eins og það sé sannleikur lífs
þeirra. Lögmál markaðarins eru þeim heilög og efnahagshrun íslenska
fjármálalífsins var í rauninni aðeins tilfelli um að slæmt fólk hafi
verið í mikilvægum stöðum.
Rannsóknarskýrsla Alþingis, rit sem situr enn á metsölulistum í
bókabúðum landsins, fer öðruvísi með málið en þessir trúarboðar
laissez-faire stefnunnar. Hún fer mjög skilvirkt í gegn um þá
atburðarrás sem átti sér stað og sýnir fram á að kerfisbundið
hugsunarleysi og skortur á heilbrigðri skynsemi var ríkjandi hjá
þessari elítu. Stefna aðhaldsleysis átti að vera allt sem til þurfti,
en endaði á því að varpa íslensku samfélagi fram af bjargi.
Það ber að hafa í huga tortryggni gagnvart öfgamönnum, hvort sem
öfgarnar eru byggðar á trú á yfirnáttúrulega vætti eða á lögmál
markaðarins og ósýnilegar hendur. Gagnrýnin hugsun og upplýst umræða
eru helstu varnir samfélagsins gegn þessum öfgum.
Tómas Gabríel Benjamin
höfundur er ritari í stjórn Ungra vinstri grænna

