Ung vinstri græn
Pistlar

20.5.2010 Snærós Sindradóttir

Hús unga fólksins - frjálst og óháð

Snærós Sindradóttir

Í aðdraganda kosninga keppist núverandi meirihluti í Reykjavík  við að lofa öllu fögru í atvinnumálum. Flokkunum tveimur, Framsóknar- og Sjálfstæðisflokki, þykir steinsteypa smart og sjá tækifærin í stóriðjuframkvæmdum, sem reynslan hefur sýnt að skili litlu sem engu. Meirihlutanum láist  að muna eftir þeim sem ekki hafa áhuga á að vinna í verksmiðjum. Hann gleymir líka þeim sem kjósa heldur að eiga sinn þátt í auðgun menningar og listalífs.

Síðasta sumar var starfrækt í Austurbæjarbíói svokallað Hús unga fólksins að tillögu fyrrverandi borgarfulltrúa VG, Svandísar Svavarsdóttur. Starfsemi hússins var gríðarlega fjölbreytt og gekk verkefnið vonum framar. Án nokkurs fyrirvara og án neinnar sjáanlegrar ástæðu ákvað Hanna Birna Kristjánsdóttir þó að loka húsinu þegar sumarið var á enda. Kostnaður við að reka Hús unga fólksins var lítill sem enginn, þar sem Reykjavíkurborg þurfti ekki að greiða leigu af húsnæðinu og hugmyndasköpun kostar ekki krónu.

Lokun húss unga fólksins voru kuldaleg skilaboð til ungra Reykvíkinga. Hanna Birna borgarstýra gerði þar aðför að lifandi lista- og menningarlífi á sama tíma og mikill fjöldi ungs fólks sér fram á atvinnuleysi í sumar. Stefnan sem fylgt hefur verið í tíð núverandi meirihluta miðar að því að velja menningu ofan í  borgarbúa. Meirihlutinn virðist hvorki vera tilbúinn til að styðja við fjölbreytt listalíf né skapa aðstæður til þess að það þrífist í Reykjavík. Þeirri stefnu verður ekki breytt í tíð Sjálfstæðismanna.

Ungt fólk í Reykjavík býr yfir gríðarlegum sköpunarkrafti. Öll listsköpun, hvort sem hún tengist leikhúsi, tónlist, myndlist eða bókmenntum, þarf sitt rými til að blómstra. Hús sem opið væri til listsköpunnar myndi gefa margfalt af sér til borgarinnar. Í húsi þar sem aðgangur væri ókeypis fyrir upprennandi listamenn gætu ótrúlegar hugmyndir orðið að veruleika. Krafturinn sem býr í Reykvíkingum leysist ekki úr læðingi í verksmiðjum Sjálfstæðis- og Framsóknarmanna. Krafturinn sem býr í Reykvíkingum fær ekki að njóta sín þar sem menningin er matreidd ofan í fólkið og embættismenn ákveða hvað megi sýna og hvað megi ekki.

Krafturinn sem býr í ungum Reykvíkingum verður einungis nýttur þegar menningin fær að flæða óhefluð, óháð því hver framkallar hana og óháð því hvað meirihlutinn vill sjá.


Snærós Sindradóttir
höfundur er formaður Ungra vinstri grænna á höfuðborgarsvæðinu og skipar 8. sæti á lista VG fyrir borgarstjórnarkosningarnar 29. maí nk.

Greinin birtist á Smugunni 4. maí 2010

Senda grein


Leita á vefnum






 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica