Þú hefur áhrif
Sama hver þú ert og sama hvað þú gerir þá hefur þú ávallt eitt sem sameinar þig öðru fólki, það eru skoðanir. Það þurfa ekki endilega að vera sömu skoðanir og annað fólk hefur heldur það eitt að hafa skoðanir gerir þig að því sem þú ert.
Það sem margir vita ekki er að skoðanir þínar teljast jafn mikilvægar og skoðanir hvers annars, þær þurfa ekki að vera pólitískar, viturlegar eða áhugaverðar, þær þurfa bara að vera. Það sem einkenndi ,,gamla Ísland” var það að fólk hafði ekki skoðanir á hlutunum, því var alveg sama um allt og alla. Blessunarlega hefur þetta breyst. Nú hafa allir skoðanir á öllu, pólitík, fjölmiðlum, öðru fólki og sjálfu sér, því fagna ég. Við unga fólkið þurfum að taka afstöðu, því það erum jú við sem munum taka við þessu landi á næstu misserum.
Ég hef tröllatrú á ungu kynslóðinni, þ.e. þeirri kynslóð sem mun taka við eftir örfá ár. Mér finnst okkar kynslóð vera umburðarlynd, fordómalaus og opinská. Okkar skoðanir munu byggja upp landið þannig að næsta kynslóð geti tekið við keflinu í góðu umhverfi. Það er reyndar þrándur í götu okkar kynslóðar að þurfa að taka við landinu eins og það er statt í dag. En þó svo að efnahagurinn sé í rúst þá megum við ekki gleyma því sem er ekki í rúst. Hugsjónir okkar, náttúra, jafnrétti og jöfnuður eru enn til. Við þurfum að halda í þessi gildi, bæta stoðir þeirra og innleiða þau inn í þjóðfélagið okkar.
En hvernig tengist komandi kynslóð og skoðanir pólitík? Allt sem við gerum og allt sem við segjum er ,,pólitískt”. Pólitík er ekki einungis prúðbúið fólk sem rökræðir á Alþingi. Pólitík er svo miklu miklu meira en það. Við lifum öll eftir okkar eigin ,,lífspólisíu”. Við höfum öll fyrirfram ákveðnar hugmyndir um það hvernig við viljum lifa og í hvernig þjóðfélagi við viljum vera þátttakendur. Fólk sem hefur aldrei nokkurn tímann skoðað stjórnmálaflokka eða stefnuskrár getur verið rammpólitískt, það fólk þarf að virkja.
Daníel Haukur Arnarsson
höfundur situr í stjórn Ungra vinstri grænna

