Ung vinstri græn
Pistlar

1.5.2010 Elín Sigurðardóttir

Alþjóðlegur baráttudagur verkalýðsins

Hugleiðingar í tilefni af 1. maí

Elín Sigurðardóttir

Á baráttudegi verkalýðsins 1. maí er við hæfi að líta yfir farin veg og setja hlutina í samhengi. Sífellt færri láta sig verkalýðsbaráttuna varða og 1. maí er orðinn eins og hver annar frídagur sem fólk nýtir til að fara með fjölskyldunni í sund og fá sér ís. Til hvers að fara í kröfugöngu? Fyrir hverju á eftir að berjast? Samverustundir með fjölskyldunni eru að sjálfsögðu af hinu góða, en gleymum ekki fyrir hvaða sakir launafólk á hvíldarrétt, helgarfrí, sumarorlof, veikindarétt og lífeyrissjóði.   Atvinnurekendur færðu ekki launafólki þessi réttindi á silfurfati og ekki komu þau af sjálfu sér. Það er mikilvægt að muna að fyrir þessum réttindum börðust bæði verkalýðshreyfingin og kvennahreyfingin.


Framlag kvennahreyfingarinnar

Framlag kvennahreyfingarinnar til bættra kjara kvenna á vinnumarkaði má ekki gleymast. Kvennahreyfingin barðist fyrir mikilvægum og nauðsynlegum réttindum kvenna svo sem  kosningarétti og í kjölfarið fylgdi baráttan fyrir réttindum kvenna á vinnumarkaði s.s fæðingarorlofi, dagvistun barna og sömu launa fyrir sömu vinnu. Margt hefur áunnist í baráttunni, fæðingarorlof foreldra og opinberir leikskólar eru dæmi um það. En sumstaðar er ennþá  langt í land eins og launamunur kynjanna sýnir svart á hvítu, kynjaður vinnumarkaður er enn við lýði, hefðbundin kvennastörf eru ekki metin til sömu launa og hefðbundin karlastörf og fæð kvenna í stjórnunarstöðum er ólíðandi. Það er erfitt að brjóta glerþakið og þar skiptir samtakamáttur og barátta launafólks ennþá miklu máli.


Til hvers að fara í kröfugöngu?

Barátta launafólks og samtakamáttur þeirra er mjög mikilvægur nú á tímum efnahagsþrenginga og niðurskurðar á flestum sviðum. Þau réttindi sem launafólk hefur þarf að verja svo að þeim verði ekki vegið. Fyrir þeim var barist og því má aldrei gleyma. Laun fjölmargra hafa verið lækkuð eftir hrunið auk þess sem skemmst er að minnast þegar stjórnvöld hugðust stytta fæðingarorlof um mánuð, þrátt fyrir að hafa skert það töluvert áður. Það er erfitt að berjast fyrir réttindum sínum þegar fleiri þúsund manns eru án atvinnu og óttinn um atvinnumissi er ríkjandi. Það má ekki verða þannig að núverandi efnahagsástand leiði til stórfelldrar kjaraskerðingar launafólks, sérstaklega þeirra sem lægst hafa launin.

Alþjóðlegur baráttudagur verkalýðsins 1. maí skipar mikilvægan sess í baráttu launafólks fyrir bættum réttindum og launum sem duga til framfærslu. En þátttaka í aðgerðum á  1. maí er líka leið til að votta þeim sem ruddu brautina virðingu sína minnast þess með stolti að það sem áunnist hefur í réttindabaráttu launafólks er ekki sjálfsagt og gefið.

Elín Sigurðardóttir
höfundur situr í stjórn UVG og skipar 4. sætið á lista VG fyrir borgarstjórnarkosningarnar í Reykjavík

Greinin birtist á Smugunni 1. maí 2010

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)

Ung vinstri græn þiggja með þökkum athugasemdir við alla pistla en óska þess að athugasemdir séu málefnalegar. Allar athugsemdir eru á ábyrgð höfundur en Ung vinstri græn áskilja sér þó rétt til þess að fjarlægja athugasemdir sem þau telja ekki hæfar til birtingar.



Leita á vefnum



Eldri pistlar


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica