Ung vinstri græn
Pistlar

24.4.2010 Guðrún Axfjörð Elínardóttir

Tölum saman - upphátt

Guðrún Axfjörð Elínardóttir

Skömm. Sektarkennd. Tilfinningalegur doði. Sjálfsvígshugleiðingar. Sjálfssköðun.
Þessar tilfinningar og hugtök eru aðeins brot af því sem brotaþolar kynferðisofbeldis tiltaka sem erfiðustu afleiðingar ofbeldisins sem þeir hafa verið beittir. Meðal annara afleiðinga sem brotaþolar  nefna eru t.d. kvíði, reiði, einangrun og erfið tengsl við maka og vini. Auk alls þessa, eru kvíðaraskanir á við áfallastreituröskun tíðar hjá brotaþolum kynferðisofbeldis. Flestir hljóta að geta tekið undir það að ofangreind atriði vildum við fæst upplifa. Verra er þó að enn sem komið er ræða fáir opinskátt um kynferðisbrot og þær alvarlegu afleiðingar sem þau hafa í för með sér.

Við leit mína á veraldarvefnum, að heimasíðu sem byggi yfir ráðum til að forðast það að nauðga, voru leitarniðurstöðurnar heldur snautlegar. Aftur á móti rakst ég þar á óhugnanlegan fjölda heimasíðna þar sem allt úði og grúði í ráðum fyrir konur; ráðum sem þær gætu nýtt sér til að forðast það að vera nauðgað. Við snögga yfirferð á efni þessara heimasíðna, hvarflaði hugurinn ósjálfrátt aftur um eitt ár. Í apríl 2009 birtist nefnilega auglýsing í tímaritinu Monitor. Ég hafði til þess dags, er ég barði þetta tiltekna tölublað tímaritsins augum, ekki þótt birting auglýsinga í tímaritum tiltökumál. Öðru máli gegndi þó um þessa auglýsingu Lýðheilsustöðvar þar sem skilaboðin voru þau að ef fólk drykki ekki, væri það í minni hættu á að verða fyrir ofbeldi - þar með talið nauðgunum. Eins og áður kom fram er ég áhugakona um leit á veraldarvefnum og leitaði því að umræddri auglýsingu  undir liðnum „Útgefið efni – Auglýsingar“ á vef Lýðheilsustöðvar. Það er skemmst frá því að segja að þær leitarniðurstöður voru jafnvel snautlegri en þegar ég leitaði ráða fyrir mögulega gerendur.

Birting þessarar auglýsingar er þó langt frá því að vera einsdæmi þegar kemur að því að varpa ábyrgð á kynferðisbrotum yfir á brotaþola. Fyrir hátt í tíu árum síðan birtist t.a.m. fyrsta blaðagreinin sem ég man eftir að hafi haft jafn stuðandi áhrif á mig og títt nefnd auglýsing. Þar var á ferðinni ítarleg umfjölllun eins af dagblöðum landsins, í vikunni fyrir verslunarmannahelgi, þar sem ungum stúlkum voru gefin hin ýmsu ráð til að forðast það að vera nauðgað á útihátíðum komandi helgar. Þar var ekki einn stafkrók að finna um mikilvægi þess að nauðga ekki. Ég, þá tæplega sextán ára gömul, fylgdist með í forundran þar sem samstarfskonur mínar mærðu þessa grein og áttu varla til orð yfir öll þau atriði sem komið var inn á og þær hefðu aldrei hugsað út í. Þær ræddu svo í hálfum hljóðum um kunningjakonur sínar sem „...höfðu víst lent í svona,“ en umræðan komst aldrei á það stig að hún færi fram upphátt. Það er ekki fyrr en nú, um tíu árum seinna, að ég skil hvers vegna umræðan fór svo hljótt. Þessum konum, líkt og samfélaginu öllu, hafði verið innrætt það að brotaþolinn bæri ábyrgð; að þær sem ekki pössuðu sig væru sekar. Þögnin var í þessu tilfelli illskárri kostur en umræðan.

Ég bíð eftir að sjá varnaðarorð Lýðheilsustöðvar til mögulegra gerenda. Ég bíð eftir að fjölmiðlar birti góð ráð til handa ungum mönnum, um hvernig á að sleppa því að nauðga. Ég geri meira að segja ekki kröfu um að þau ráð birtist á heilsíðu í vikunni fyrir verslunarmannahelgi. Ég geri mér þó grein fyrir því að þess getur orðið langt að bíða og vil leggja mitt af mörkum þangað til. Ég legg því til að við berjumst gegn þögninni. Tölum saman, sterkum rómi. Tölum upphátt.

Senda grein

Athugasemdir (3)

  1. brysmart skrifar:

    ultram 8424 phentermine 8706 ambien \=[[[ acomplia 6753 doxycycline :]]

    21.5.2010, kl. 21:27 | #

  2. soojung skrifar:

    aciphex 20 mg 81591 diet pill acomplia also called rimonaban 7832 phentermine sales %-) valium gyh levitra 8] valium 874435 buy href tramadol 712025

    25.5.2010, kl. 9:23 | #

  3. itstime4lunch skrifar:

    valium aqfbfi meridia 717 prednisone 91234 carisoprodol 7943

    21.6.2010, kl. 5:04 | #

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)

Ung vinstri græn þiggja með þökkum athugasemdir við alla pistla en óska þess að athugasemdir séu málefnalegar. Allar athugsemdir eru á ábyrgð höfundur en Ung vinstri græn áskilja sér þó rétt til þess að fjarlægja athugasemdir sem þau telja ekki hæfar til birtingar.



Leita á vefnum



Eldri pistlar


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica