Ung vinstri græn
Pistlar

2.3.2010 Atli Sigurðarson

Kvíga á kroppasýningu

atli-sigurdarson

Fyrir um 40 árum undirbjó hópur vaskra kvenna eilítinn gjörning. Konur þessar voru oft kenndar við rauða sokka og rauð föt. Þær voru þekktar fyrir að vilja láta heyra í sér í hópum og fyrir vasklega framgöngu. Þær höfðu sig í frammi með mótmælaspjöld á lofti og oft var ein sem var nokkurs konar forkólfur þeirra og hélt ræðu yfir mannsskapnum eða mannhafinu allt eftir því hvað tilefnið var. Þær voru nefnilega Rauðsokkur eða í Rauðsokkahreyfingu/m.

Eitt sinn fékk ein þeirra ákveðna hugljómun og eitt leiddi af öðru.  Í aðdragenda fegurðarsamkeppni fóru þær saman í heimsókn út í sveit. Þær fundu þessa forláta kvígu sem þær síðan máluðu með klassískum varalit sem tíðkaðist mikið á 7. áratug síðustu aldar. Einnig klæddu þær hana upp í föt fyrir tilefnið. Þegar fegurðarsamkeppnin átti sér stað gengu þær vasklega inn í salinn og teymdu myndarlegu kvíguna um gólfið. Þær vildu sýna fram á hvað fegurðarsamkeppnir væru lítið annað en kroppasýningar. Þetta olli miklu fjaðrafoki og  komst að sjálfsögðu í blöðin.Svona róttækt var þetta á árum áður þó vissulega séu andmæli gegn fegurðarsamkeppnum eilítið róttæk nú á dögum.
 
Ef stúlka kemur til með að vera í einu af þremur efstu sætunum í fegurðarsamkeppni nú til dags þarf hún að skrifa undir samning á síðustu stundu rétt fyrir krýninguna. Hún má  ekki tala við fjölmiðla eftir samkeppnina og þarf að fylgja margliðuðum reglum sem brjóta á hennar  einkalífi svo um munar í a.m.k. eitt ár eftir keppnina. Um málið hefur verið fjallað ítarlega á  RÚV en mér finnst að þurfi að setja lög varðandi svona keppnir. Það er ekki hægt að láta þær stúlkur sem taka þátt í fegurðarsamkeppnum verða fyrir barðinu á slíkri framkomu aftur og aftur.

Atli Sigurðarson
höfundur er tónlistarnemi

---

Heimildir:
Hlín Torfadóttir
Torfi Jónsson
RÚV

Senda grein


Leita á vefnum






 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica