Ung vinstri græn
Pistlar

21.2.2010 Jan Eric Jessen

Stríðið okkar í Írak

Jan Eric Jessen

Síðar í þessum mánuði verða liðin sjö ár frá því Bandaríkjamenn réðust ásamt vinaþjóðum inn í Írak. Nú hafa 27 þingmenn úr öllum flokkum, að Sjálfstæðisflokknum undanskildum, lagt fram þingsályktunartillögu þess efnis að koma skuli á fót rannsóknarnefnd um aðdraganda ákvörðunar um stuðning Íslands við þessa innrás.

Ég fagna þessari tillögu og vona að Alþingi beri gæfu til þess að samþykkja hana sem fyrst. Það er deginum ljósara að stuðningur Íslands við innrásina gerir okkur siðferðislega og pólitískt ábyrg fyrir stríðinu og hinum skelfilegu afleiðingum þess.

Viðtal sem morgunútvarp Rásar tvö tók við Halldór Ásgrímsson og fjallaði um rannsóknarnefndartillöguna verður að teljast afar athyglisvert. Eftir að hafa lýst því yfir að hann skildi ekkert í því af hverju verið væri að grafa þetta mál upp núna barst talið að því hvort Halldór myndi taka sömu ákvörðun um stuðning Íslands við stríð ef hann stæði frammi fyrir henni nú. Halldór kvaðst ekki myndu styðja stríðið, ætti að taka afstöðu til þess í dag.

Það er í sjálfu sér ekki í frásögu færandi – heldur er það rökstuðningur Halldórs fyrir þeirri afstöðu sinni. Ástæðan fyrir því að hann myndi leggjast gegn stuðningi við stríðið í dag er ekki sú að hann sé mótfallinn því að drepa á annað hundrað þúsund óbreyttra borgara ellegar valda dauða yfir milljón manna. Hún er heldur ekki sú að hann sé mótfallinn því að ofbeldi sé beitt til að útkljá deilumál eða vernda hagsmuni ríkja sem hafa hernaðarlega yfirburði. Nei. Tvær meginröksemdir Halldórs eru þær að Bretar séu ekki lengur vinir okkar og að bandaríski herinn sé ekki lengur með herstöð á Keflavíkurflugvelli.

Erum við virkilega tilbúin að leggja blessun okkar yfir stríð og hernað Bandaríkjanna í skiptum fyrir herstöð á Keflavíkurflugvelli? Erum við virkilega tilbúin að styðja stríð og hernað Breta, bara af því við erum vinir þeirra?

Væri nú ekki meiri reisn yfir því að herlausa þjóðin sem við erum lýsum því yfir að við erum andvíg því að pólitísk deilumál séu leyst með hernaði? Hvernig væri ef við segðum okkur úr NATO og beittum okkur fyrir friðsamlegri sambúð þjóða?

Ég stend í þeirri trú að yfirgnæfandi meirihluti þjóðarinnar sé andvígur stríði og hernaði. Ef til vill er eitthvað til í þeirri klisju að öll stærstu vandamál heimsins séu komin til af því að við segjum ekki hvað það er sem við viljum.


Jan Eric Jessen
höfundur er formaður Ungra vinstri grænna

Senda grein


Leita á vefnum






 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica