Ung vinstri græn
Pistlar

5.2.2010 Snærós Sindradóttir

Atvinna er velferðarmál

Snærós Sindradóttir

Þegar horft er til tölfræði um atvinnuleysi í Reykjavíkurborg kemur bersýnilega í ljós hversu ríkjandi hluti atvinnulausra hefur einungis grunnskólamenntun. Fyrir þessu geta verið ýmsar ástæður. Þeir sem ekki hafa sótt menntaskóla virðast frekar eiga erfitt með að vinna sig upp virðingarstigann og eyða því ómældum tíma í hark í hvers kyns iðnaði, sem núna liggur niðri vegna skorts á verkefnum. Önnur breyta getur líka átt sinn þátt í að hækka prósentutöluna um atvinnuleysi borgarinnar; ungt fólk á menntaskólaaldri er oftar en ekki í háð sumarstörfum til að geta haldið skólagöngu sinni áfram. Þau sem ekki komast í framhaldsskólanám vegna fjárhagsörðugleika verða því að bjarga sér í gegnum veturinn með vinnu sem ekki er að fá, í fyrsta lagi því ráðið er í flest störf samkvæmt kröfum um menntun og í öðru lagi því þau fáu störf sem ekki hafa þær lágmarkskröfur eru löngu frátekin. Að þeim forsendum gefnum er auðvelt að fullyrða að atvinna er velferðarmál.

Atvinna ungs fólks er nauðsynlegur liður í áframhaldandi endurreisn Íslands. Sú kynslóð sem kemur til með að taka við af þeirri sem nú ræður ríki og bæ verður að hafa reynslu og þekkingu til að viðhalda framleiðslugetu þjóðarinnar. Aðgerðarleysi ungmenna getur valdið langvarandi skaða á atvinnulífi hér á landi svo ekki sé talað um heilsufarsvandamál eða stóraukna glæpatíðni.
 
Ég álít það skyldu ríkis og sveitarfélaga um allt land að skapa atvinnu og tryggja að gott umhverfi sé fyrir nýsköpun og hugmyndaauðgi. Það er ekki vænlegt til vinnings að skipa öllum í sama stakk og bjóða uppá einhæfar framkvæmdir sem henta nánast einvörðungu einni líkamsbyggingu og þar af leiðandi öðru kyninu. Þegar ungt fólk er annars vegar verður fjölbreytnin að ráða ríkjum. Í jafn þróuðu samfélagi og við búum í eiga valkostir ungs fólks að vera sem flestir svo hver og einn fái að njóta sín sem best og öðlist þá þekkingu sem hann kýs. Reykjavík hefur uppá ótal möguleika að bjóða og ónýtt tækifæri eru víða. Tryggjum ungu fólki skemmtilega og fjölbreytta atvinnu á næstu árum með áherslu á lista- og menningarlíf borgarinnar. Sníðum samfélaginu stakk eftir vexti og aukum fjölbreytileika.


Snærós Sindradóttir
höfundur er formaður UVGH og býður sig fram í 4.-5. sæti í forvali Vinstri grænna í Reykjavík þann 6. febrúar næstkomandi

Senda grein


Leita á vefnum






 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica