Ung vinstri græn
Pistlar

28.10.2009 Ísleifur Egill Hjaltason

Orrustuþotur

Ísleifur Egill Hjaltason

Þessa dagana er áætlað að koma upp aðstöðu fyrir orrustuþotur á Reykjanesinu sem verða nýttar sem rússagrýlur fyrir herleiki Nató auk viðhalds fyrir flugvélar herbandalagsins. Ég ásamt öðrum hernaðarandstæðingum harma þessar fregnir og vona að þessar áætlanir verði ekki að veruleika.

Eitt skal hafa á hreinu, þessar framkvæmdir munu ekki búa til nein verðmæti, þvert á móti myndum við sóa gífurlegum fjárhæðum í það eitt að þjálfa flugmenn í að sprengja upp fátækustu lönd heims aftur á steinöld. Núna myndu eflaust einhverjir stoppa mig af og andmæla. „Þessi aðgerð skapar nú einu sinni störf og býr til pening!“  En bíðum nú við! Hvaðan kemur peningurinn sem á að fara í þessar þotur? Nefnilega frá skattborgurum Natóríkjanna. Þessi peningur hefði ekkert horfið þótt honum hefði ekki verið eytt í þetta tiltekna verkefni.  Höfum við virkilega ekkert betra að gera með peningana okkar á sama tíma og helmingur jarðarbúa lifa á undir 2 dollurum á dag og barn deyr á fimm sekúndna fresti í heiminum vegna vannæringar? Ég efast ekki um að skattgreiðendur Natóríkjanna vilji frekar að sínir skattar fari í þróunaraðstoð en vitagagnslaus hernaðarútgjöld gegn óvini sem hvergi er sýnilegur. Það væri einnig í fullkomnu samræmi við stefnu núverandi ríkisstjórnar sem sagði í stjórnarsáttmála sínum að „Ríkisstjórnin leggur áherslu á baráttu fyrir mannréttindum og kvenfrelsi, friði og afvopnun og gegn fátækt, félagslegu ranglæti, misskiptingu og hungursneyð, m.a. með markvissri þróunaraðstoð.“ Aðildarríki Nató eru ábyrg fyrir um 70% af hernaðarútgjöldum heimsins, er ekki kominn tími til að slaka á?

Ísleifur Egill Hjaltason
höfundur er varaformaður Ungra vinstri grænna á höfuðborgarsvæðinu

Senda grein


Leita á vefnum






 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica