Ung vinstri græn
Pistlar

27.9.2009 Jan Eric Jessen

Ávarp formanns UVG

jan-eric-jessen

Kæru félagar!

Það er mér sannur heiður að fá við þetta tækifæri að gera orð fyrrverandi stjórnarformanns Enn eins að mínum - „Ég er eins og skyr. Ég er mjög hrærður.”

Fyrst af öllu vil ég þakka fyrir það traust sem mér er sýnt með því að vera kjörinn til að gegna þessu embætti.

Þrátt fyrir að vel á annað þúsund manns séu félagsmenn í Ungum vinstri grænum eru einungis fáir tugir þeirra virkir. Svona hefur þetta alltaf verið hjá okkur í UVG, við sem tökum þátt í starfinu erum afar fámennur hópur.

Þá bláköldu staðreynd er aftur á móti ógerningur að lesa út úr skýrslu stjórnar sem Steinunn fór yfir í gær. Það þarf hvorki launað framkvæmdastjóraembætti né nær ótakmarkaðan aðgang að fjármagni til að reka áhrifamestu stjórnmálahreyfingu ungs fólks á landinu. Fámennur hópur fólks með sterka réttlætiskennd og óbilandi trú á eigin hugsjónum getur breytt samfélaginu. Ef ég hefði ekki trú á því þá væri ég ekki hér og ef þið hefðuð ekki trú á því, þá væruð þið ekki hér. Við skulum aldrei missa sjónar á því sem við ætlum okkur að gera.

Þetta fyrsta ár mitt í stjórn UVG hefur verið afar viðburðaríkt ár í íslenskum stjórnmálum. Þegar fráfarandi stjórn UVG tók við hafði ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar mikinn meirihluta þjóðarinnar á bakvið sig. Það eru því viss tímamót að við erum nú í fyrsta skipti að hefja nýtt starfsár með Vinstrihreyfinguna – grænt framboð sem aðila að ríkisstjórn. Þótt pólitísk staða og hlutverk VG hafi breyst verulega með aðild að ríkisstjórn eru okkar hlutverk að mestu leyti þau sömu og áður. Við erum enn umræðu- og samstarfsvettvangur ungs fólks í VG og við einbeitum okkur áfram að því að veita flokknum okkar og stjórnvöldum aðhald. Ég lít svo á að þetta síðarnefnda sé brýnna nú en nokkri sinni fyrr. Þrátt fyrir að við styðjum ríkisstjórnina verðum við að vera ófeimin við gagnrýna hana á uppbyggilegan hátt fyrir það sem hún gerir rangt eða illa. Það er okkar hlutverk og þannig komum við best að gagni.

Það sem hefur kannski breyst hvað mest við þetta er að við höfum við þetta öðlast meiri möguleika á að ná eyrum ríkisstjórnarinnar hvað okkar baráttumál varðar. Allt í einu er við völd ríkisstjórn sem er tilbúin að setja lög um bann við kaup á vændi, ríkisstjórn sem hefur uppi áætlanir um að breyta kvótakerfinu, ríkisstjórn sem tekst að hækka grunnframfærslu námslána þegar um 64 milljarða hagræðingaraðgerðir bíða næsta þingi.

Það er eitthvað sem við verðum að notfæra okkur. Á komandi starfsári er ástæða til að leggja sérstaka áherslu á baráttumál sem kosta ekki peninga og er raunhæft að koma í verk.

Í því samhengi vil ég sérstaklega nefna austurrísku leiðina í meðhöndlun heimilisofbeldismanna. Ég sé það fyrir mér sem eitt af okkar stærstu báráttumálum í vetur og verð hreinskilnislega sagt mjög vonsvikinn ef þessi hugmynd verður ekki orðin að lögum frá Alþingi á næsta landsfundi UVG.

Þá get ég nefnt hluti á borð við:
• að ein hjúskaparlög séu í landinu,
• að táknmál sé viðurkennt í lögum sem fyrsta mál heyrnarlausnra, heyrnarskertra og daufblindra og
• að ákveðinn hluti þjóðarinnar geti með formlegum hætti krafist þjóðaratkvæðagreiðslu

svo að dæmi séu tekin.

Kæru félagar, það eru mjög erfiðir tímar framundan. Næsta fimmtudag mun ríkisstjórnin kynna bæði niðurskurð og skattahækkanir, hvort um sig uppá tugi milljarða króna. Ég get nánast lofað ykkur því að það verður allt brjálað úti í þjóðfélaginu og að ríkisstjórnin muni liggja undir mikilli gagnrýni fyrir þær aðgerðir sem ráðist verður í.  
 
Á sama hátt og það er okkar hlutverk að gagnrýna ríkisstjórnina fyrir það sem hún gerir illa, er það okkar hlutverk að verja hana þegar hún er höfð að rangri sök og beitt ósanngjörnum málflutningi. Við skulum vera viðbúin því að andstæðingar okkar reyni að skella skuldinni yfir á okkur og við skulum vera viðbúin miklu mótlæti á næstu vikum og mánuðum. Við verðum að vera dugleg við að minna fólk á það hvers vegna ríkisstjórnin þarf að ráðast í þessar blóðugu hagræðingaraðgerðir og benda fólki á það hvaða afleiðingar það hefði fyrir þjóðfélagið ef ekki yrði ráðist í þessar aðgerðir.

Ég vil nota þetta tækifæri til að þakka fráfarandi stjórn fyrir æðislegan vetur. Þetta er búið að vera virkilega skemmtilegt. Ég veit að ég á eftir að sakna ykkar sem eruð að hætta í stjórninni en vænti þess að þið takið núþegar til starfa í Seðlabanka UVG og haldið áfram að skipta ykkur af starfseminni með hóflegum hætti.

Þá vil ég óska nýkjörnum stjórnarmeðlimum til hamingju með kjörið. Ég hlakka til að takast á við þau verkefni sem bíða okkar og hvet ykkur öll til að taka virkan þátt í starfi UVG á komandi starfsári.

 

Jan Eric Jessen
Pistillinn er ávarp formanns UVG og var flutt á landsfundi félagsins á Hvolsvelli 27. september 2009

 

 

Senda grein


Leita á vefnum






 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica