Ávarp
„Megir þú lifa á áhugaverðum tímum“ segir gamalt máltæki. Við sem lifðum seinasta ár af getum ekki annað en þakkað pent fyrir heillaóskina. Eftir trylltan vetur tók við viðburðaríkt sumar. Fólk fékk varla að sleikja sólina í friði fyrir IceSave reikningum og ESB-þrætum á meðan að lengsta sumarþing á Íslandi frá upphafi rann sitt skeið. Þó gafst friður til að grilla á kvöldin – en það voru færri sem græddu á daginn.
Fyrir tæpu ári fékk heilt þjóðfélag svo mikinn skell að fólk stóð vankað eftir og velti fyrir sér hvort að einhver banki á skerinu yrði ennþá starfandi eftir helgi. Í byrjun október síðastliðinn héldu Ung vinstri græn vel heppnaðan landsfund, en á sama tíma og UVG rökræddu, ályktuðu og skemmtu sér, sátu bankamenn sólarhringunum saman á neyðarfundum í fyrirtækjunum sem einu sinni voru álitin þeirra. Daginn eftir landsfund UVG féll Glitnir.
Við tóku mánuðir dofans og kraumandi reiði sem að náði hápunkti sínum í janúar þegar að nokkuð þúsund manns beittu pólitískum þrýstingi sem splundraði ríkisstjórninni og kom hægrimönnum frá völdum eftir 18 ára valdasetu. Vinstri græn áttu í fyrsta sinn sæti í ríkisstjórn og voru um leið komin í harða kosningabaráttu. Kosningarnar voru sigur fyrir Vinstri græn sem aldrei áður hafa náð viðlíka kjörfylgi. En það er enginn dans á rósum að reyna að byggja upp gott samfélag þegar þarf að vaða frjálshyggjuskít upp fyrir herðablöð.
Við tókum þetta samt að okkur. Við gerðum það því við trúum því að það væri miklu verra ef þeir sem komu okkur á kaldan klaka sætu enn á valdastólum sínum. Við trúum að aðra forgangsröðun en þeirra, þá forgangsröðun sem hjálpar þeim sem mest þurfa á því að halda. Þannig byggjum við upp betra og réttlátara samfélag.
Auðvitað stendur VG sig ekki alltaf vel. En þá þarf að berjast fyrir úrbótum á uppbyggjandi hátt. Til að hafa áhrif verðum við að taka slaginn, gagnrýna samflokksmenn okkar, benda á betri leiðir og bjóðast til að hjálpa. Ekki sitja heima í sófa og væla á fésbók eða bloggum hvað allir og allt sé ömurlegt. Stöndum upp! Tökum þátt! Ekki gefast upp og setjast í sófann. Við breytum engu þannig.
Þú lifir á áhugaverðum tímum – en það er fólk sem breytir sögunni, sem skapar það samfélag sem við búum í. Vert þú í hópi þessa fólks. Við bjóðum þig velkominn/velkomna á landsfund Ungra vinstri grænna haustið 2009.

