Töfralausnir Framsóknarflokks
Til er stjórnmálaflokkur á Íslandi sem hefur mjög einfalda töfralausn til að bjarga heimilum frá þeim bráða efnahagsvanda sem við glímum nú við. Flokkurinn heitir Framsóknarflokkur og töfralausnin fólgin í því að fella niður 20% af skuldum heimilanna. Það hlýtur því að teljast með ólíkindum hversu illa Íslendingar fóru að ráði sínu í nýafstöðnum Alþingiskosningum. Einungis tæp 15% greiddu Framsókn atkvæði sitt meðan rúmur helmingur greiddi flokkum atkvæði sem nú sitja í ríkisstjórn og þverneita að framkvæma þessa töfrahugmynd Framsóknarflokksins.
Hverju ætli þetta sæti? Gæti ástæðan verið sú að einhver þurfi að borga fyrir framkvæmd þessarar tillögu – jafnvel almenningur? Gæti ástæðan verið sú að ríkissjóður sé rekinn með 170.000 milljóna króna halla og að ekki séu peningar fyrir hendi til að framkvæma þessa rándýru tillögu? Gæti ástæðan verið sú að á næstu þremur árum þarf að snúa þessum 170.000 milljóna króna halla á ríkissjóði yfir í afgang? Gæti ástæðan verið sú að ef vinstristjórnin hefði þá gríðarlegu fjármuni til umráða sem þyrfti til að framkvæma tillögur Framsóknar myndi hún nýta þá með markvissari hætti til að styðja þá sem mest þurfa á stuðningi að halda? Gæti ástæðan verið sú að kjósendur treysti ekki þeim Framsóknarflokki sem í örvæntingu sinni framkvæmdi þá töfralausn að hækka lánshlutfall á húsnæðislánum í 90% - með skelfilegum afleiðingum á húsnæðismarkaðinn? Tja, maður spyr sig.
Nú er nóg komið af óábyrgum málflutningi Framsóknarflokksins. Nú er nóg komið af því að Framsóknarflokkurinn kyndi óraunhæfar væntingar í hjörtum fólks í pólitískum tilgangi. Nú er komið að því að menn standi saman að því að reisa íslenskt samfélag við með raunsæi, heiðarleika og hreinskilni að leiðarljósi.
Jan Eric Jessen
höfundur er varaformaður Ungra vinstri grænna

