Ung vinstri græn
Pistlar

25.4.2009 Steinunn Rögnvaldsdóttir

Vinstra vorið

Steinunn Rögnvaldsdóttir

Það er á síðustu dögum fyrir kosningar í vor sem að Íllgresið brýtur sér leið uppúr moldinni, og blómstrar í sólargeislunum. Vinstra-vor er nærri, en ekki í hendi enn. Á næstu dögum gengur íslensk þjóð á sögulegum tímamótum til kosninga. Kosninga sem að var barist fyrir með pottum og pönnum á Austurvelli og víðar vikum saman, og aldrei hopað. Markmiðið var skýrt: nú skyldi breyta.

Það þurfti að breyta um stefnu, því að sú frjálshyggjustefna sem að hér var keyrð á fullri fart á 18 ára valdatíð Sjálfstæðisflokksins, stýrði íslensku efnahagslífi í þrot og hefur leitt til fjöldaatvinnuleysis, hruns fyrirtækja, og skertra lífskjara venjulegs fólks sem að gerði þau einu mistök að treysta þeim sem sögðu að erlend (myntkörfu)lán væru málið. Það þurfti nýja stefnu sem setti velferð fólks í forgang, ekki auðsöfnun fyrirtækja sem að þrifust á að lána sjálfum sér peninga.

Það þurfti að skipta um fólk, því að fólkið sem að stýrði landinu á þessum tíma hefur enn í dag ekki viðurkennt að stefna þeirra hafi brugðist. Fólkið brást, af því að það fylgdi vondri stefnu og ver hana frammí rauðan dauðann. Þetta fólk brást þegar að það neitaði almenningi um upplýsingar, um lýðræðislega aðkomu og um að axla ábyrgð. Enn í dag má telja þau sem hafa axlað ábyrgð á fingrum annarrar handar.

Það þurfti að skipta um gildi, vegna þess að einstaklingshyggja síðustu ára gerði alla að eylandi. Það að vilja að fólk stæði þéttar saman og reyndi að styðja við bakið á hvoru öðru þegar að harðnaði á dalnum var álitið ógn við einstaklinginn og tækifæri hans. En nú er erfitt árferði og margir finna fyrir því nú, hversu mikilvægt það er að hafa öflugt öryggisnet til að treysta á. Um það öryggisnet, velferðarkerfið, hafa Vinstri græn staðið vörð í 10 ár í stjórnarandstöðu. Nú standa þau vörð um velferðina í ríkisstjórn. En velferðin hefur aldrei áður verið í jafn mikilli hættu, og við þurfum alla þá aðstoð sem hægt er að fá, til að verja hana.

Það eru erfiðir tímar og nauðsynlegt að forgangsraða í íslensku samfélagi. Kosningarnar í vor snúast um þetta: forgangsröðun. Við verðum að forgangsraða og setja öryggi og velferð fólks í fyrsta sæti. Við verðum að staldra við og spyrja okkur, hvað er það sem skiptir máli á krepputímum? Er það að selja náttúruauðlindir fyrir mengandi stóriðju og taka þátt í stríðsleikjum herdvergabandalaga útí heimi? Er það að einkavæða ríkisfyrirtæki og selja vinum sínum þau á spottprís? Er það að koma áfengi í kjörbúðir?

Nei. Það sem skiptir máli er að halda fæðingardeildum á landsbyggðinni opnum og koma í veg fyrir að fólk þurfi að borga fyrir að leggjast veikt inná spítala. Það skiptir máli að þyrlur landhelgisgæslunnar séu í góðu ásigkomulagi. Það skiptir máli að öll börn fái a.m.k. eina heita máltíð á dag í skólanum svo að ekkert barn sé svangt. Það skiptir máli byggja upp fjölbreytt atvinnulíf í stað þess að setja öll eggin í sömu körfuna. Það skiptir máli að koma í veg fyrir fjöldaatvinnuleysi háskólastúdenta með því að koma á sumarönnum. Þetta eru hlutir sem raunverulega skipta máli, og þetta er það sem að Ung vinstri græn standa fyrir.

Ung vinstri græn eru ekki í framboði til Alþingiskosninga, heldur móðurflokkurinn Vinstri græn. Samt sem áður ætla Ung vinstri græn að gefa almenningi kosningaloforð. Það kosningaloforð er að hætta aldrei að berjast fyrir jöfnuði, velferð og félagslegu réttlæti. Að hætta aldrei að standa vörð um náttúruna, hætta aldrei að vinna að jöfnum rétti karla og kvenna, og taka alltaf afstöðu gegn hernaði, gegn ofbeldi, gegn spillingu, svikum og óréttlæti. Ung vinstri græn gera þetta sem þrýstiafl í samfélaginu, og saman erum við sterk. Það er núna sem við öll þurfum að taka höndum saman, kjósa okkur vinstristjórn, velferðar- og félagshyggjustjórn, og veita henni aðhald. En það verður ekkert vinstri, án Vinstri grænna.

Mætum á kjörstað, nýtum atkvæðisréttinn, tökum þátt í baráttunni og hættum aldrei að berjast. Markmiðið er enn skýrt: við viljum breyta – og við skulum breyta. Við breytum með alvöru vinstristjórn í vor!

Steinunn Rögnvaldsdóttir,
formaður Ungra vinstri grænna
greinin birtist í Íllgresi - málgagni Ungra vinstri grænna sem kom út í apríl 2009

Senda grein


Leita á vefnum






 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica