Fátækt á Íslandi
Nú sem aldrei fyrr þarf að minna á eina staðreynd; fólk býr við fátækt á Íslandi. Þeir sem gleymdust í góðærinu eiga nú að borga brúsann fyrir sukk fjáróreiðumanna. Láglaunafólk, atvinnulausir, öryrkjar og aldraðir eiga nú að sýna „samstöðu“ á erfiðum tímum og taka á sig kjaraskerðingu. Ekki var hægt að bæta kjör þessara hópa í góðærinu og því spyr ég; af hverju eiga þessir hópar nú að borga brúsann?
Við megum aldrei gleyma því að á Íslandi býr fólk, fullorðnir, börn, aldraðir og öryrkjar við fátækt. Fólk á ekki fyrir lífsnauðsynjum. Fjölskyldur draga fram lífið frá mánuði til mánaðar eða degi til dags. Mæður eiga ekki fyrir mat fyrir börnin sín. Þetta er staðreynd á Íslandi árið 2009. Fátækt hefur alltaf verið til á Íslandi, líka þegar gróðæri geysaði hér. Nú mun hinsvegar ört fjölga í hópi fátækra á Íslandi. Nú þegar fjöldi atvinnulausra nálgast 20 þúsund og lánin hækka upp úr öllu valdi. Nú sem aldrei fyrr þurfum við að standa vörð um íslenskt velferðarkerfi. Öflugt velferðarkerfi sem rekið er á samfélagslegum grunni er eina von margra sem fastir eru í viðjum fátæktar.
Styrkja þarf innviði samfélagsins á mörgum sviðum, velferðar- og heilbrigðiskerfið þurfa að þjóna öllum óháð efnahag og því algjörlega ótækt að stefna að frekari einkavæðingu á þessum sviðum. Fólk á rétt á því að lifa með reisn óháð efnahag og engin á að þurfa að standa í röð til að sækja sér matvæli og aðrar lífsnauðsynjar. Þann 25. apríl nk. er verið að kjósa um margt. Kjósendur geta tekið afstöðu til hvort þeir kjósi náttúruvernd, kvenfrelsi og félagslegt réttlæti. Mikilvægast af öllu er þó að standa vörð um öflugt velferðarkerfi á Íslandi og því mun ég setja X við V þann 25. apríl!
