Ekki láta þá gefa okkur puttann!
Þegar þing kom saman eftir jólafrí beið þingmanna stórt og mikið verk: að laga efnahagsvanda þjóðarinnar eftir hrunið snemma í október á síðasta ári. Sjálfstæðisflokkurinn var þá í valdastöðu og fólk beið eftir úrlausnum á vandanum sem einmitt Sjálfstæðisflokkurinn kom okkur í. Fyrsta mál á dagskrá hlaut að vera eitthvað sem myndi laga vandann. Fólk beið örvæntingarfullt eftir því að stjórnin kæmi með úrlausnir. Almenningur mótmælti og öskraði á einhverjar lausnir, að ríkisstjórnin myndi gera eitthvað fyrir þjóðina, koma með frumvörp, láta fólk axla ábyrgð, skipta út stjórnum, tala á móti óréttlæti Breta eða hreinlega upplýsa þjóðina um hvað var virkilega að gerast hjá stjórnvöldum. En þeir gerðu ekkert af þessu. Sjálfstæðismönnum fannst mikilvægara að koma áfengi í verslanir.
Með þessu voru Sjálfstæðismenn beinlínis að gefa þjóðinni puttann. Brýnasta mál á dagskrá var ekki að leysa efnahagsvanda þjóðarinnar sem „nota bene“ þeir komu okkur í, heldur var það agnarsmátt kosningamál flokksins sem þeir töldu mikilvægara að leysa áður en efnahagurinn yrði endurreistur. Þetta athæfi var ekki einungis mjög illa tímasett heldur var þetta beinlínis dónaskapur við þjóðina, þeir voru óbeint að segja að við værum hálfvitar og þeir mættu alveg gefa okkur puttann, ef þeir vildu.
Málið er þó einfalt. Við nennum ekki, viljum ekki og leyfum þeim hreinlega ekki að gefa okkur fingurinn lengur, fólk hefur fengið nóg. Núna verðum við að vinna saman að því að endurreisa efnahag þjóðarinnar áður en aukaatriði og smámál koma fyrir þingið. Flokkapólitík verður að víkja og baráttusverð verður að slíðra áður en lengra er haldið, þetta hefði reyndar átt að gera um leið og efnahagurinn hrundi en íhaldið vildi frekar gera það sem þeir gera best: ekki neitt.
Segjum nei við gömlum gildum og verum opin fyrir nýjum skoðunum, nýjum áherslum og nýju fólki. Það er því mikilvægt að ungt fólk fái sæti á þingi til þess að koma nýjum röddum að. Við verðum að standa saman, því saman komumst við í gegnum hvað sem er. Segjum nei við Sjálfstæðisflokki og byggjum betra samfélag úr rústunum með öflugri félagshyggjustjórn í vor!

