Ung vinstri græn
Pistlar

9.4.2009 Kristján Ketill Stefánsson

Ungt fólk og gagnrýnin hugsun

Kristján Ketill Stefánsson

Ég man vel eftir því þegar ég var við nám við Menntaskólann á Egilsstöðum og ónefndur frambjóðandi kom til að veiða atkvæði hjá óreyndum og bláeygum menntskælingum.  Eftir loforðafyllta framboðsræðu  gaf hann sig á tal við mig og vini mína þar sem við stóðum uppveðraðir yfir því að þessi Íslands eina von hefði áhuga á því hvað við hefðum að segja. En rétt eins og Íngólfur Arnarsson Jónsson í Sjálfstæðu fólki þá spurði hann okkur bara einnar spurningar: „Hvað eru þið gömul?“. Við sögðum eins og var, við vorum 17 ára.  Með það sama var hann þotinn á braut án þess svo mikið sem að kveðja.
Íslendingar eru ung þjóð í samanburði við nágrannalöndin. Eftir smá leit á vef hagstofunnar komst ég að því að 1. janúar 2009 var einn af hverjum fjórum einstaklingum í landinu yngri en 18 ára. Hvar er rödd þessa fólks? Hvar eru skoðanakannanirnar sem sýna afstöðu ungs fólks? Hvar eru málefnaumræðurnar í grunn- og framhaldskólunum? Hvers vegna virðist eldri kynslóðinni almennt vera sama um afstöðu fjórðungs þjóðarinnar?
Til áminningar fyrir fjölmiðla og frambjóðendur í landinu langar mig að vitna í 12. grein barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna sem var staðfestur fyrir Íslands hönd árið 1992: „Aðildarríki skulu tryggja barni sem myndað getur eigin skoðanir rétt til að láta þær frjálslega í ljós í öllum málum sem það varða, og skal tekið réttmætt tillit til skoðana þess í samræmi við aldur þess og þroska.“
Á undanförnum árum höfum við upplifað þann skort á gagnrýnni hugsun í garð stjórnvalda sem gerði Sjálfstæðisflokkinum mögulegt að kafsigla íslensku efnahagslífi svo til án athugasemda. Gagnrýnin hugsun er ekki meðfædd. Hana þarf að þjálfa m.a. með því að takast á um málefni og velta raunverulegum álitamálum fyrir sér um leið og maður er fær um að mynda sínar eigin skoðanir. Þjálfum gagnrýna hugsun komandi kjósenda og tökum sjónarmið unga fólksins með í umræðuna í kosningunum í vor.

Kristján Ketill Stefánsson

Höfundur skipar 8. sæti á framboðslista Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í Reykjavíkurkjördæmi norður fyrir Alþingiskosningar vorið 2009


Senda grein


Leita á vefnum






 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica