Það býr von í unga fólkinu
Það fer ekki á milli mála að Íslendingar eru í erfiðri stöðu. Skuldir þjóðarinnar eru komnar upp fyrir öll mörk, atvinnuleysi hefur aldrei verið meira á síðustu áratugum og það er ekki hægt að treysta erlendum lánsaðilum til að bjarga okkur úr súpunni. Partýstefna eins flokks hefur kaffært okkur og skemmdirnar eru meiri en plástrameðferð þeirra getur lagað. Hvað getur þá svona lítið land gert til að bjarga sér?
Eigum við að selja aðgang að landinu okkar og gefa fleiri erlendum iðnrisum færi á að byggja mengandi álver? Nei, slík skemmdarverk gagnvart náttúru Íslands eru ekki einu sinni efnahagslega hagstæð fyrir Íslendinga, því álverð fer snarlækkandi og eftirspurnin minnkar með hverjum degi. Eigum við að selja auðlindir okkar? Fiskinn, landbúnað og vatnið? Nei, við getum ekki skorið á líflínuna okkar, þá eigum við ekkert nema skuldirnar. En hvað getum við þá gert? Hvar sjáum við glitta í vonargeisla?
Vonin býr í hámenntaða unga fólkinu okkar. Það hefur ítrekað sýnt fram á dugnað, en nú þarf það að sýna aðlögunarhæfileika þar sem aðstæðurnar á Íslandi hafa breyst. Við verðum að leiða unga fólkið í gegnum þessa kreppu með sjálfbærri þróun, með því að sóa ekki meiru en við getum skapað, með því að skilja ekki landið eftir í verra ástandi en við fengum það. Við verðum að sýna að við viljum ekki bara finna skammtímalausnir sem stuðla að stöðuleika í dag á kostnað morgundagsins. Ef við einkavæðum allt úr höndum þjóðarinnar, seljum allar auðlindirnar og missum traust og álit umheimsins, hvernig getum við búist við því að unga fólkið vilji búa á þessu landi?
Landið hefur verið skilið eftir í molum, en við verðum að sá fræjum vonarinnar svo nýja kynslóðin geti dafnað. Íslenskur jarðvegur hefur ávallt verið erfiður og aðeins þrautseigustu blómin ná að dafna í þessu kalda landi, en við höfum alltaf vitað það. Enginn bað unga fólkið fallega um að axla þessari byrði, en hún þarf samt sem áður að bera hana. Við þurfum bara að treysta því að við höfum sýnt ungu kynslóðinni nógu mikla umhyggju og miðlað nógu mikilli þekkingu til að hún missi ekki vonina, til að hún stefni að nýjum lausnum.
Gefum unga fólkinu tækifæri til að skapa nýtt samfélag byggt á sanngirni, jöfnuði, réttlæti og von. Nýja Ísland verður ekki til á einum degi, það verður til með vinnu heillar kynslóðar. Leyfum nýja Íslandi að verða til.

