Dýrkeyptur sandkassaleikur
Leikni Sjálfstæðisflokksins til að skemma fyrir þjóðinni virðast engin takmörk sett
Leikni Sjálfstæðisflokksins í að skemma fyrir íslensku þjóðfélagi virðist engin takmörk sett. Flokkurinn lætur sér ekki nægja að skilja þjóðarbúið eftir í rjúkandi rúst eftir 18 ára valdasetu heldur stendur nú í vegi fyrir brýnum aðgerðum til uppbyggingar sem þola enga bið.
Það er aumkunarvert að horfa uppá Ragnheiði Ríkharðsdóttur biðja um matarhlé, Arnbjörgu Sveinsdóttur þingflokksformann kvarta yfir því að fá ekki nægan svefn og þingflokkinn í heild sinni eyða dýrmætum tíma í örvæntingafullri tilraun sinni til að skemma fyrir ríkisstjórninni, meðan íslensku þjóðinni blæðir út fyrir þeirra eigin verk. Málþóf er vissulega lýðræðisleg aðferð sem er góðra gjalda verð. En öll framkoma Sjálfstæðisflokksins á Alþingi undanfarnar vikur hefur einungis miðað að því að tefja brýn verkefni á erfiðum tímum. Ég hefði haldið að þingflokkur Sjálfstæðisflokksins skuldaði þjóðinni það að leggjast á árarnar með nýrri ríkisstjórn til að byggja upp betra samfélag. Mér dettur að minnsta kosti ekki til hugar að vorkenna svangri Ragnheiði eða þreyttri Arnbjörgu.
Einn liður í því að byggja upp betra samfélag er að tryggja lýðræðislegar leikreglur sem gefa þjóðinni raunverulegt vald til að hafa áhrif á ákvarðanatökur. Kosningar á fjögurra ára fresti en alræði 63 fulltrúa hennar þess á milli er ekki lýðræðislegt stjórnarfar. Einnig þarf að sjá til þess að auðlindir landsins séu raunverulega þjóðareign og að ekki sé hægt að leggja þær að veði eða útdeila til einstaklinga eða fyrirtækja. Með sandkassaleik sínum á Alþingi er Sjálfstæðisflokkurinn ekki einungis að standa í vegi fyrir þessum mikilvægu umbótum á samfélaginu heldur einnig að tefja fyrir aðgerðum til að hjálpa fjölskyldum og fyrirtækjum í efnahagskreppunni.
Sjálfstæðisflokkurinn virðist ekki gera sér grein fyrir kröfum þjóðarinnar, þeim sömu kröfum og gerðu honum ókeift að starfa áfram í ríkisstjórn. Við höfum fengið okkur fullsödd af spilltum stjórnvöldum sem stilla vinum sínum upp í valdastöður hvarvetna í stjórnkerfinu. Við höfum fengið okkur fullsödd af ólýðræðislegum vinnubrögðum stjórnvalda.
Stjórnvöld þurfa að koma fram af hreinskilni og heiðarleika og koma upplýsingum til þjóðarinnar fram með skýrum hætti. Stjórnvöld verða að taka velferð samfélagsins fram yfir gæluverkefni og einkavinavæðingu. Á þann hátt þarf að gjörbylta bæði vinnubrögðum og forgangsröðun.
Vissulega er skiljanlegt að fólk verði skelkað við að horfa upp á heimsmynd sína hrynja til grunna. Vissulega er skiljanlegt að fólki bregði þegar það gerir sér grein fyrir því að það hafi átt frumkvæðið að því að gera heilt þjóðfélag gjaldþrota. En öllum hlýtur að vera ljóst að fólk sem ekki er tilbúið að horfast í augu við vandann og taka þátt í að byggja upp betra samfélag hefur ekkert erindi á Alþingi.
Jan Eric Jessen
varaformaður Ungra vinstri grænna

