Pistlar
Til hamingju með afmælið NATO!
Núna í byrjum apríl verða komin 60 ár síðan að Norður-Atlandshafsbandalagið, betur þekkt sem NATO, var stofnað. Aðildarríkin voru upphaflega 12 talsins og hefur Ísland verið í þeim vafasama félagsskap frá upphafi. En aðildarríkin eru orðin tæplega 30 talsins nú í dag. NATO var upphaflega hugsað sem varnarbandalag á tímum Kalda stríðsins, til að standa gegn Rússlandi sem var stærsta ógn Bandaríkjanna. En þegar Kalda stríðinu lauk og Sovétríkin hrundu, þá var NATO ekki lagt niður, heldur var hlutverk þess endurskilgreint og útvíkkað út í að vera árásar- og hernaðarbandalag sem fyrst og fremst gengur erinda Bandaríkjanna. Núna síðast í þeirra vafasama stríði gegn hryðjuverkum sem hefur kostað ótal mannslíf. Með aðild sinni að NATO hefur Ísland gerst formlegur stríðsaðili, fyrst árið 1999 með loftárásum NATO á Júgóslavíu og hefur bara bæst á ferilskránna síðan þá. Þrátt fyrir þá almennu skoðun hér á landi að Ísland ætti að vera hlutlaust og herlaust land sem ætti að beita kröftum sínum fyrir friðarbaráttuna í heiminum.
Aðildarríki NATO hafa sameiginlega kjarnorkuvopnastefnu, að Frakklandi undanskildu, og hafa kjarnorkuvopn verið geymd leynilega víðsvegar í NATO ríkjum og þar er Ísland án efa ekki undanskilið. NATO áskilur sér þann rétt að geta ávallt beitt kjarnorkuvopnum að fyrra bragði í hernaði. Vopnaframleiðslu og vígvæðingu landa er líka að mestu leyti haldið uppi af NATO og aðildarríkjum þess. En vopnaframleiðsla heimsins væri rétt svo brot af því sem hún er í dag ef ekki væri fyrir NATO og stefnu aðildarríkjanna.
Það var einmitt 30 mars 1949 þegar Alþingi samþykkti lög þess eðlis að Ísland mundi taka þátt í að stofnsetja NATO. Aðild Íslands að NATO var harðlega mótmælt og voru lögin afgreidd í skugga táragas og barsmíða hvítliða út á Austurvelli eins og kunnugt er. En hernaðarbandalagið var formlega stofnað fáeinum dögum síðar, eða 4 apríl og telst það því vera afmælisdagur NATO. Dagana 2 til 5 apríl verður leiðtogafundur NATO haldinn í Strassborg í Frakklandi og nágrannabænum Kehl í Þýskalandi og verður án efa mikið um dýrðir þar sem um stórafmæli er að ræða. En afmælisdagurinn verður ekki bara haldinn „hátíðlegur“ af NATO-sinnum heldur munu friðarsinnar og aðgerðarsinnar hvaðan æva af, ekki láta sig vanta í partýið. Boðað hefur verið til mikilla mótmælaaðgerða á meðan afmælisveislan stendur yfir af regnhlífasamtökunum No to NATO.
Friðarsinnar, hernaðarandstæðingar og aðgerðasinnar ættu því ekki að láta sitt eftir liggja hér á landi þegar svo vafasamt afmæli stendur yfir. Heldur skulum við öll fylkja liði niður á Austurvöll á morgun, mánudaginn 30 mars kl 17:00 og höfnum NATO! Mótmælum hernaði, vígvæðingu, árásarhernaði og tilvist herdvergaklúbbsins NATO og aðildar okkar að honum!

Þórhildur Halla Jónsdóttir