Vinalegu ráðgjafafyrirtækin
Ummæli fyrrverandi heilbrigðisráðherra og þingmanns Sjálfstæðisflokksins, Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, í viðtali við fréttamenn í vikunni vöktu furðu mína. Þá hafði ég þegar furðað mig á því hvernig honum tókst að eyða 24 milljónum af skattfé í aðkeypta ráðgjafaþjónustu á aðeins 20 mánuðum. Undrun mín og áhugi vöknuðu þó fyrst fyrir alvöru þegar heilbrigðisráðherrann fyrrverandi hélt því fram að ekkert væri óeðlilegt við þessar fjárfestingar, og að arftaki hans, Ögmundur Jónasson, væri að reyna að koma höggi á sig með því að upplýsa almenning um þær.
Mér er spurn: Ef að ekkert er óeðlilegt við þessa eyðslu Guðlaugs úr sjóðum almennings, af hverju segir segir hann Ögmund vera að reyna að koma á sig höggi? Er ekki eðlilegt að upplýsa það hvað gert er við skattpeningana okkar? Jú, það er svo sannarlega eðlilegt. Það sem er hins vegar tortryggilegt, er að svo virðist vera sem að Guðlaugur Þór hafi haft sérstök tengsl við eigendur flestra ráðgjafafyrirtækjanna sem um ræðir. Svo við tölum hreint út: þau eru flest vinir og stuðningsmenn Guðlaugs. Skoðum málið nánar.
Ragnar Þórir Guðgeirsson, sem fékk hæstar upphæðir frá ráðuneytinu í gegnum fyrirtæki sitt, er nú formaður Fjölnis – tók við því embætti af Guðlaugi Þór. Þeir hafa verið vinir lengi og eftir að Ragnar Þórir varð formaður Fjölnis var Guðlaugur Þór gerður að heiðursformanni félagsins. Fyrirtæki Ragnars gerði úttekt á Heilbrigðisstofnun Austurlands og Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, veitti ráðgjöf vegna breytinga á skipulagi heilbrigðisstofnana og átti aðild að nefnd um málefni Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Fyrir þetta fékk fyrirtækið greiddar 10.672.762 krónur. Það er umhugsunarefni hvort að svo veigamikið og kostnaðarsamt verkefni er ekki útboðsskilt og hvort það hafi verið boðið út.
Annar vinur Guðlaugs Þórs er Magnús Árni Skúlason, en þeir sátu saman í stjórn Sambands ungra Sjálfstæðismanna (SUS) á sínum tíma. Fyrr í þessum mánuði skrifuðu þeir saman grein í Morgunblaðið um húsnæðismál, þannig að þeir virðast vera í góðu sambandi. Magnús var m.a. á lista stuðningsmanna á vef Guðlaugs Þórs í prófkjöri Sjálfstæðismanna í Reykjavík 2006. Fyrirtæki Magnúsar Árna vann ýmis sérfræðistörf fyrir ráðherrann og fékk fyrir 924.138 krónur.
Kristján Vigfússon er ráðgjafi Evrópunefndar Sjálfstæðisflokksins. Fyrirtæki Kristjáns vann að ráðgjafavinnu vegna lyfjamála og fékk greiddar fyrir 2.540.424 kr.
Samkvæmt tilkynningu frá heilbrigðisráðuneytinu var Inga Dóra Sigfúsdóttir (sem sat í stjórn SUS með Guðlaugi Þór á sínum tíma) ráðin í tímabundna stöðu í ráðuneytið. Það er ekki hægt að skilja þessa tilkynningu öðruvísi en svo að Inga Dóra sé ráðin til starfa og hafi farið sjálf á launaskrá hjá ráðuneytinu. Það er í sjálfur sér eðlilegt að ráðherrar ráði fólk tímabundið til að sinna verkefnum og ráðgjöf þannig að það eitt er ekki gagnrýnisvert. Hins vegar vekur það upp spurningar að sjá reikning frá fyrirtæki í hennar eigu, en fyrirtækið fékk 1.494.000 krónur vegna vinnu við mótun, gerð og kynningu á heilsustefnu, auk vinnu við gerð frumvarps um Lýðheilsustöð og mótun hugmynda að framtíðarskipulagi Lýðheilsustöðvar, Landlæknis o.fl.
Upp vaknar spurningin: var Inga Dóra á launaskrá eða verktaki? Ef hún var verktaki, hefði þá ekki verið eðlilegra að senda út tilkynningu um að ráðuneytið ætlaði sér að kaupa þjónustu af því fyrirtæki, en ekki tilkynningu þess efnis að hún hafi hafið störf sem ráðgjafi Guðlaugs Þórs? Ef hún var á launaskrá, hvað er þessi verktakareikningur þá að gera þarna? Varla hefur hún verið á launaskrá og sent verktakareikning, eða hvað?
Þá vekur þjónusta Daggar Pálsdóttur athygli, en hún er ekki bara einhver lögmaður út í bæ heldur varaþingmaður flokksins. Fyrirtæki Daggar fékk greiddar 1.322.344 krónur fyrir vinnu við frumvarp um sjúkraskrár og frumvarp um heilbrigðisstarfsmenn. Í hvaða heimi er eðlilegt að varaþingmenn stjórnarflokks rukki skattgreiðendur um slíka þjónustu? Og hvað þá aðra eins upphæð.
Að lokum er það Eggert Skúlason sem var PR maður Guðlaugs Þórs í prófkjöri Sjálfstæðismanna í Reykjavík haustið 2006. Gerður var samningur við hann um PR vinnu fyrir ráðherra/ráðuneyti og fjölmiðlaþjálfun forstöðumanna uppá 2.528.816 krónur.
Að þessari upptalningu lokinni tel ég mikilvægt að koma einu á hreint: ég er ekki á móti því að stjórnendur ráði fólk sem þeir treysta í mikilvæg störf. En hvaða mikilivægu störf er um að ræða hér? PR-þjálfun ráðherra og forstöðumanna, og samning lagafrumvarpa fyrir 1,3 milljónir, og það af varaþingmanni stjórnarflokks ráðherrans? Og hvað með útboð á verkefnum, var því sinnt eða voru bara valdir menn og konur kölluð til verksins? Hvað er það sem ekki er sagt? Hvar eru fréttamenn sem eiga að upplýsa okkur um hvað t.d. „ýmis sérfræðstörf fyrir ráðherra“ þýða?
Það óskiljanlegasta er að allt þetta á sér stað í skugganum sem að hvílir yfir íslensku heilbrigðiskerfi. Meðan að þetta var allt saman í gangi lögðu ljósmæður niður störf til að knýja fram laun í samræmi við menntun sína, settur var sjúklingaskattur og tvímennt er í herbergjum á geðdeild þar sem að húsnæði er í slæmu ásigkomulagi – svo nokkur dæmi séu tiltekin. Þetta var forgangsröðunin.
Það er eðlilegt að fyrrverandi heilbrigðisráðherra kveinki sér þegar að þetta er dregið fram í dagsljósið. Þetta er nefnilega ekkert til að vera stoltur af.
Greinin birtist áður á vefmiðlinum Smugunni þann 25. febrúar 2009
Athugasemdir (2)
-
XcherryXcoolX skrifar:
what does generic xanax look like :-((( buying viagra online 8-P tramadol apap 20731 doxycycline order qkqdwu accutane 8-))
-
Maria9ta skrifar:
poor or bad credit cards %PP visa quants frequent flyer credit cards :(( soma block patterns 568 autodesk autocad profile manager 91346


Skrifa athugasemd