Ung vinstri græn
Pistlar

9.2.2009 Tómas Gabríel Benjamín

Blóði drifinn sigur

Tómas Gabríel Benjamín

Hverjum hefði dottið það í hug fyrir hálfu ári að mótmæli ættu eftir að skipta sköpum fyrir framtíð samfélagsins. Nokkur hundruð hræður með skilti að mótmæla Íraksstríðinu þar sem einstaka hópóp heyrðust – í mesta lagi 30 sekúndur í senn – hafa hingað til þótt vera öflug og vel heppnuð mótmæli Íslandi. Ekki lengur. Síðastliðin tvö ár hafa umhverfisverndarsinnar verið sagðir beita ofsafengnum aðgerðum í baráttu sinni gegn Kárahnjúkavirkjun og þeir uppnefndir „atvinnumótmælendur“. Það þóttu vera öflug og róttæk mótmæli. Ekki lengur.

Í desember og janúar höfum við séð alvöru mótmæli. Við höfum séð hvernig mótmæli hafa breytt hinu pólitíska umhverfi landsins. Þúsundir hafa komið saman, sýnt samstöðu, hugrekki og virkjað reiði sína í þágu betra samfélags. Stjórnvöld hafa ekki getað annað en óttast. Eins og oft hefur verið sagt: Fólkið á ekki að hræðast ríkisstjórn sína, ríkisstjórnin á að óttast fólkið sitt.

Valdastéttin hefur bælt alþýðuna og reynt að halda í völd sín með öllum tiltækum ráðum. Krafa fólksins hefur verið einföld; réttlæti, lýðræði og gegnsæi. Ríkisstjórnin hefur reynt að afvegaleiða baráttu fólksins með hræðsluáróðri, en sigurinn er okkar. Sigur sem kostaði okkur blóð, svita og tár. Því miður þurftu mótmælendur og lögreglumenn að hljóta áverka og beinbrot, en mótmælin virðast hafa þurft að ganga svo langt. Nú er ljóst hversu mikill eldmóður fólksins í landinu er og hversu langt almúginn er reiðubúinn að ganga til að berjast fyrir réttindum sínum. Það má ekki óttast þessa reiði, þetta afl sem leystist úr læðingi aðfararnótt 22. janúar þó ekkert okkar vilji upplifa þá stöðu á ný. Stjórnmálamenn íhaldsins sem sögðu fáeinum dögum áður að kosningar væru ómögulegar eru nú á því að maí gæti jafnvel hentað vel til kosninga.

Ríkisstjórnin hefur verið veruleikafirrt – áttaði sig ekki á þeim veruleika sem var ríkjandi í samfélaginu  á meðan alþýðan upplifði kreppuna – hún lifði í raunveruleikanum. Eins og Hegel sagði, mótar vinnan manninn en sönnun þess sést bersýnilega í vanhæfni og þroskaleysi ráðamanna. Valdamenn voru það ótengdir  að þeir leyfðu sér að segja að mótmælendurnir væru ekki þjóðin, en með þrautseigju tókst okkur að afsanna þessi frægu orð. Með rauðum fánum, svörtum klútum, friðsamlegum aðgerðum, beinum aðgerðum og samstöðu tókst okkur að vinna sigur á valdaklíkunni og berjast fyrir því sem rétt er.

Sigurinn er okkar – fólksins í landinu. Nú geta stjórnvöld ekki neitað okkur um lýðræðislega úrvinnslu á málinu. Nú geta stjórnvöld ekki neitað okkur um þann möguleika að stokka upp í ríkisstjórninni. Nú getum við afhjúpað og upprætt þá spillingu sem hefur arðrænt okkur síðastliðin sautján ár. Nú tekur við uppbygging á nýju lýðveldi byggðu á sanngirni, gegnsæi, réttlæti og jafnrétti. Það kostaði okkur blóð, það kostaði okkur tár en það hafðist. Mótmælin hafa breytt hugsunarhætti fólksins – vakið það loks úr neytendablundinum, úr letihamnum og komið því á skrið. Baráttunni er ekki lokið, við gefumst ekki upp fyrr en vorið er komið og kosningar afstaðnar, en sigurinn er þjóðarinnar að sinni.

 

Greinin birtist áður á Smugunni þann 9. febrúar 2009
Tómas Gabríel Benjamín

Senda grein


Leita á vefnum






 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica