Ung vinstri græn
Pistlar

4.1.2009 Jan Eric Jessen

Af hverju styður þriðjungur þjóðarinnar VG?

Góð útkoma Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í skoðanakönnunum að undanförnu ætti ekki að koma mörgum á óvart. Þeir sem láta þetta mikla fylgi VG fara hvað mest í taugarnar á sér eru í örvæntingu sinni farnir að halda því fram að VG komi aldrei með neinar lausnir.
 
Það er ekki nóg með það að VG hafi varað við því árum saman að hér væri allt að stefna í óefni í efnahagsmálum þjóðarinnar. Þingmenn VG hafa lagt fram fjöldann allan af frumvörpum á Alþingi um úrbætur í efnahagsmálum. Meðal þess eru frumvörp um eflingu fjármálaeftirlitsins, aðskilnað fjárfestingabanka og viðskiptabanka og að efnahagsstofnun verði sett á laggirnar. Eins vildi VG að Alþingi beindi þeim tilmælum til fjármálaeftirlitsins að huga þyrfti vandlega að áhættumati í bankakerfinu með tilliti til áhrifa af snöggri gengislækkun krónunnar eða lækkun fasteignaverðs og að fram færi heildstætt mat á arðsemi stóriðju- og virkjanaframkæmda sökum ruðningsáhrifa og þenslu. Síðastliðið vor lagði VG til að gjaldeyrisvaraforðinn yrði efldur. VG hefur svo sannarlega lagt til ýmsar úrbætur í efnahagsmálum. Ef ríkisstjórnin hefði nú bara hlustað á þessi varnaðarorð og gripið til þeirra ráðstafana sem VG lagði til værum við mun betur sett í dag en við erum.
 
Sunnudaginn 6. desember sl. sendi flokksráð VG frá sér áætlun um endurreisn íslensks þjóðarbúskapar og framþróun í samfélaginu. Þar koma fram ýmsar góðar tillögur um næstu skref stjórnvalda. Meðal þess sem fram kemur í tillögunum er að sett verði þak á hækkun höfuðstóls verðtryggðra húsnæðislána, að vaxtabætur verði hækkaðar, að nauðungaruppboð verði stöðvuð næstu 2-3 mánuðina, að umtalsverðu aukafjármagni verði strax veitt til sveitarfélaganna og að opinberum bönkum og lánastofnunum verði gert að styðja atvinnufyrirtæki gegnum yfirstandandi erfiðleika með skuldbreytingum og nauðsynlegri rekstrar- eða endurfjármögnun.
 
Sú ríkisstjórn sem fær það verðuga verkefni að leiða endurreisnarstarf hins íslenska þjóðfélags verður að njóta trausts þjóðarinnar. Það gerir sitjandi ríkisstjórn ekki. Það væri ekki einungis siðlaust af ríkisstjórninni að endurnýja ekki umboð sitt með kosningum við fyrsta tækifæri, heldur skýr skilaboð til þjóðarinnar um að ríkisstjórnin berjist eftir fremsta megni gegn lýðræðislegum stjórnarháttum.
 
Á þessum tímamótum gefst okkur einstakt tækifæri til þess að byggja þjóðfélagið upp á nýjum grunni. Byggjum upp velferðarþjóðfélag þar sem allir hafa jafnan aðgang að menntun og heilbrigðisþjónustu óháð fjárhag. Tökum upp lýðræðislega stjórnarhætti þar sem ráðamenn starfa fyrir þjóð sína. Tryggjum félagslegt réttlæti í þjóðfélaginu, jafnrétti og sjálfbæra þróun. Stuðlum að friðsamlegri sambúð þjóða. Gerum öllum kleift að lifa með reisn alla ævi óháð búsetu eða félagslegrar stöðu og byggjum Ísland þannig upp á gildum sem raunverulega skipta máli.

Jan Eric Jessen
Greinin birtist áður og þá stytt í Fréttablaðinu þann 24. desember

Senda grein


Leita á vefnum






 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica