Ung vinstri græn

Pistlar

27.11.2008 Þórhildur Halla Jónsdóttir : Við sem vorum gerð ábyrg

Á dögunum gáfust íslensk stjórnvöld upp gegn kúgunaraðgerðum erlendra stjórnmálaafla og valdastofnana og gengust í skuldaábyrgð fyrir Icesave, innlánsreikninga Landsbankans í Bretlandi og Hollandi. Með þessari uppgjöf sem ríkisstjórnarflokkarnir hafa gert sig seka um hefur íslensku þjóðinni verið steypt í slíkt skuldafen að ólíklegt er að við náum að krafla okkur þaðan upp á lífstíma þeirra miðaldra manna sem bera ábyrgðina. Lesa meira
 

26.11.2008 Brynja Björg Halldórsdóttir : Í hlekkjum óttans

Ótti er óvinur. Hann lýsir sér í bjargarleysi, órökhyggju, skammsýni, trúgirni og örvæntingu. Óttasleginn maður er tilbúinn að gera nánast hvað sem er til að komast út úr þeim aðstæðum sem hann er í. Hann er líklegur til að taka vanhugsaða ákvörðun í von um björgun. Lesa meira
 

19.11.2008 Tómas Gabríel Benjamín : Börn kreppunnar

Um þessar mundir getur reynst erfitt að komast í gegnum heilan dag án þess að heyra minnst á bankakreppuna, hvort sem það er á vinnustað, í fjölmiðlum eða hjá vinum og vandamönnum. Fjárhagsstaða fólks er að versna um leið og atvinnuleysið eykst og það hefur gríðarleg áhrif á þá yngstu í samfélaginu. Lesa meira
 

17.11.2008 Steinunn Rögnvaldsdóttir og Jan Eric Jessen : Engar kreddur

Fundarröð okkar Ungra vinstri grænna um Evrópusambandið hefur vakið talsverða athygli undanfarna daga. Tími okkar hefur að vísu aðallega farið í að taka á móti og virkja allt það nýja fólk sem nú gengur til liðs við okkur og vill taka þátt í að móta nýtt samfélag á rústum nýfrjálshyggjunnar. Lesa meira
 

15.11.2008 Steinunn Rögnvaldsdóttir : Hver á að segja af sér?

Óhætt er að segja að fyrrverandi þingmaður Framsóknarflokksins, Bjarni Harðarson, hafi brotið blað í íslenskri stjórnmálasögu með afsögn sinni sem þingmaður þann 11. nóvember 2008. Eins og flestir vita sagði Bjarni af sér vegna tilraunar sinnar til að vega úr launsátri að flokksystur sinni, Valgerði Sverrisdóttur, en sá fúli gjörningur komst upp fyrir klaufaskap Bjarna sjálfs.

Lesa meira
 

4.11.2008 Steinunn Rögnvaldsdóttir : Gagnslaus peningahít

Mikil aukning hefur verið í framlögum ríkisvaldsins til svokallaðra „varnarmála" síðustu ár. Framlög hafa farið úr 350 milljónum árið 2007 í rúmar 1.400 milljónir á fjárlögum fyrir næsta ár. Þrátt fyrir þessi miklu fjárútlát standa Íslendingar varnarlausir gagnvart hörmungum efnahagskreppunnar. Gæluverkefni formanns Samfylkingarinnar, Varnarmálastofnun, er ráðalaus gagnvart því sem nú ógnar Íslendingum mest, þ.e.a.s. atvinnuleysi, fátækt, auknu heimilisofbeldi í kjölfar efnahagsþrenginga og fleiru. Ljóst er að Varnarmálastofnun getur ekki tryggt öryggi almennings og er einfaldlega gagnslaus peningahít. Lesa meira
 

Leita á vefnum






 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica