Beint í leiðarkerfi vefsins.
Í ljósi atburða síðustu daga hefur ótti sótt að landsmönnum. Við hræðumst því við, eftir margra ára velmegun og alsnægtir, höfum svo ótal margt að missa. Nú, ólíkt öðru sem við höfum upplifað, hlær enginn að óförum annarra. Við erum á sama plani, lánin okkar hækka uppúr öllu valdi, matvara er orðin svo dýr að það er ekki sjálfgefið að skilja saddur frá kvöldverðarborðinu og börnin eru óróleg. Fyrirsagnir fjölmiðla verða stærri með hverjum deginum, „Ísland sekkur í skuldafen“, börnin gleypa við hverju orði fullviss um að vakna í húsi á floti.
Lesa meira