Ung vinstri græn
Pistlar

10.4.2008 Steinunn Rögnvaldsdóttir

Í landi mótsagnanna

Einu sinni í landi mótsagnanna, ekki svo langt í burtu, mætti formaður Samfylkingarinnar í drottningarviðtal í ríkissjónvarpinu og varði þá stefnu flokksins að endurvinna Fagra Ísland sem skeinipappír. Hún ítrekaði einnig mikilvægi þess að við stæðum við skuldbindingar okkar í loftslagsmálum, og fór svo að verja einkaþotuferðir sínar. Þar naut hún aðstoðar flokksfélaga sinna sem stofnuðu aðdáendaklúbb einkaþotunnar og skiptust á að skrifa greinar um hversu lítilmannlegt það væri að krefjast þess að ríkisstjórn sýni aðhald á erfiðum tímum og deildi kjörum með almenningi.

Svo kom Al Gore og hélt fyrirlestur um loftslagsbreytingar í Háskólabíói. Bílastæðin þar voru svo smekkfull að háskólanemar gátu hvergi lagt bílum sínum þegar þeir komu í skólann. Gestum fyrirlestrarins hefur örugglega gefist tími til að hugleiða boðskapinn í útblástursspúandi bílalestinni á leiðinni af fundinum. Á sama tíma stoppa vörubílstjórar og jeppakarlar alla umferð í óumhverfisvænustu mótmælum sem um getur. Lögreglan tekur þá talsvert mýkri tökum en náttúruverndarsinnana hér um árið, þó að kostnaður samfélagsins af mótmælunum sé miklu meiri en þegar náttúruverndarsinnar tóku upp hanskann fyrir landið okkar. Jón og séra Jeppa-Jón eru greinilega gjörólíkir lögbrjótar.

En bensínið hækkar og maturinn líka, og fjölskyldufólk borgar brúsann. Skiljanlega njóta bílsstjórarnir hylli margra. Á meðan þeir þeyta flautur þeytast ráðamenn hins vegar um í einkaþotum á hermálafundi, og formaður Samfylkingarinnar leggur til að búið verði til nýtt bákn, Varnarmálastofnun. Stofnun sú mun sjá um að passa okkur fyrir einhverju sem við vitum ekki hvað er, og bara á friðartímum. Til þessa fær stofnunin einn og hálfan milljarð í byrjun, upphæð sem líklega mun tvöfaldast á tveimur til þremur árum. Samtímis á að brjóta upp sameinaða löggæsluembættið á Suðurnesjum í nafni hagræðingar. Sjálfstæðismennirnir sem forðum æptu „báknið burt!“, þegja nú, nema þegar þeir segja vörubílsstjórunum að hætta þessum mótmælum og gefa ráðamönnum frið til að vinna vinnuna sína jafn stórvel og þeir hafa hingað til gert í hinu frábæra landi mótsagnanna.

Steinunn Rögnvaldsdóttir
Greinin birtist áður í 24 stundum þann 10. apríl 2007.

Senda grein

Athugasemdir (3)

  1. gilmoreluver skrifar:

    cheap health insurance %-(( home insurance 8-O florida health insurance 913 online car insurance uslt child health insurance %DD car insurance qoutes 8451 auto insurance rates %-DD

    8.5.2010, kl. 22:55 | #

  2. donborsa skrifar:

    celine dion gambling 831746 the history of xanax 1698 ringtones for you phone 6971 sinus medication with ibuprofen :( vanna ring tones 16639

    23.7.2010, kl. 15:41 | #

  3. ghttlax skrifar:

    unchained melody singer \=-D nexium rebate 30 woaih is yaz the same as yasmin kwfv legal gambling age in %-OO you mom took a crap 384015

    7.8.2010, kl. 18:18 | #

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)

Ung vinstri græn þiggja með þökkum athugasemdir við alla pistla en óska þess að athugasemdir séu málefnalegar. Allar athugsemdir eru á ábyrgð höfundur en Ung vinstri græn áskilja sér þó rétt til þess að fjarlægja athugasemdir sem þau telja ekki hæfar til birtingar.



Leita á vefnum



Eldri pistlar


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica