Ung vinstri græn
Pistlar

5.4.2008 Finnur Dellsén

Þotuliðið í NATO

Finnur Dellsén

Það er engin tilviljun að einkaþota Geirs Haarde og Ingibjargar Sólrúnar flýgur með þau á fund hernaðarbandalagsins NATO. Þau hefðu ekki ferðast með einkaþotu á ráðstefnu um þróunarsamvinnu, sama hversu margar millilendingar hefði þurft til. Þeim hefði heldur ekki dottið í hug að leigja einkaþotu til að fara á fund Sameinuðu þjóðanna, eða á loftslagsráðstefnuna í Balí. Nei, ef menn leigja sér einkaþotu þá er það til að fara á fund manna eins og þeirra sem sitja herráðsfundi NATO.

Það er nefnilega alveg sérstakur hópur fólks sem situr nú fundi NATO í Rúmeníu og ráðherrar þjóðarinnar reyna nú að ganga í augun á. Það er fólkið sem finnst hæfilegt að 70% af öllum útgjöldum til hernaðar í heiminum komi frá þeim 26 ríkjum sem eiga aðild að bandalaginu. Þessi glórulausu útgjöld valda því svo að þjóðir sem standa utan bandalagsins, ekki síst Kínverjar og Rússar, telja sig knúnar til að auka hernaðarútgjöld sín um 10-20% árlega. Nýtt vígbúnaðarkapphlaup er í aðsigi, með tilheyrandi bruðli og vopnaskaki, og fólkið sem situr hermálafundi NATO ber á því mesta ábyrgð.

Utanríkisráðherra er búin að átta sig á þessu hlutverki NATO sem eyðslubandalag og er byrjuð að spila með. 1500 milljónir króna hið minnsta verður eytt í „varnarmál“ á þessu ári, í fyrsta skipti í sögu landsins. Allt er þetta gert til að þóknast NATO að sjálfsögðu, enda er það sérstaklega tekið fram í frumvarpi utanríkisráðherra. Og hvers vegna ekki að stíga þá skrefið til fulls og láta skattgreiðendur borga einkaþotuna á fundinn þar sem utanríkisráðherra getur gortað sig af nýjustu afrekum sínum í þágu bandalagsins?

Það er nefnilega ekki skrýtið að ráðherrarnir velji sér einkaþotu sem ferðamáta á NATO-fundinn í Rúmeníu. Einkaþotan stendur fyrir öll þau sömu grunngildi og NATO sjálft: glórulaus eyðslusemi, firring ráðamanna og skilyrðislaus uppgjöf við hugmyndafræði hnefaréttarins.

Finnur Dellsén

Senda grein


Leita á vefnum






 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica