Ung vinstri græn
Pistlar

6.3.2008 Finnur Dellsén

1500 milljónir

Í frumvarpi utanríkisráðherra til varnarmálalaga er gert ráð fyrir að fyrirhuguð Varnarmálastofnun kosti 1350 milljónir króna. Þegar við bætist kostnaðurinn af NATO-aðildinni eru það rúmar 1500 milljónir sem hin herlausa íslenska þjóð á nú að eyða í hernað. Og þá eru ekki meðtaldar allar milljónirnar sem við munum borga erlendum hersveitum fyrir að æfa sig hér á landi á okkar kostnað. Síðasta æfing kostaði 45 milljónir eða 150.000 á hvern hermann.

En 1500 milljónirnar eru einar og sér heill hellingur af peningum. Fyrir þessa upphæð mætti fjölga leikskólaplássum um minnst 1500. Eða reka þrjá meðalstóra framhaldsskóla eða einn háskóla. Í utanríkismálunum væri svo hægt að tvöfalda framlagið til Þróunarsamvinnustofnunar og komast þar með aðeins nær því sem við höfum skuldbundið okkur til að leggja af mörkum í þeim efnum. Fyrir 1500 milljónir væri líka hægt að reka heilan Ríkislögreglustjóra til viðbótar við þann sem nú er, með þeim sérsveitum og sprengjusérfræðingum sem þar starfa.

Í því sambandi má kannski minna á að þegar upp hafa komið sprengjuhótanir hér á landi, þá er alltaf hringt í lögregluna en ekki í hermálayfirvöld. Þeir allra vænisjúkustu, sem halda að Hitler og Stalín séu í þann mund að verða endurbornir, geta huggað sig við það að ef ófriðlega horfir í heiminum er varnarsamningurinn við Bandaríkin ennþá í gildi og bandaríski herinn skuldbundinn til að verja landið. 1500 milljónirnar eru nefnilega bara til þess að „verja" okkur á friðartímum. Allt er þetta gert áður en sérstök nefnd sem á að meta „varnarþörf" Íslands hefur skilað niðurstöðum sínum. Að vísu þarf ekkert að efast um að nefnd sem skipuð er helstu hernaðarhaukum landsins komist að þeirri óvæntu niðurstöðu að auka þurfi útgjöld til hernaðarmála en samt er spurning hvort áhorfendur þessa leikrits eigi ekki í það minnsta skilið að heyra leikarana fara með línurnar sínar í réttri röð.

Finnur Dellsén

Birtist áður í Fréttablaðinu 6. mars 2008

Senda grein


Leita á vefnum






 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica