Ung vinstri græn
Pistlar

21.12.2007 Elías Jón Guðjónsson og Erlendur Jónsson

Að troða jafnrétti í kok?


Fyrir kosningar lofaði Samfylkingin úrbótum í jafnréttismálum. Það ætti því ekki að vera vandkvæðum bundið fyrir þingmenn flokksins að samþykkja frumvarp til laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla sem nú liggur fyrir Alþingi. Sjálfstæðisflokkurinn, samstarfsflokkur Samfylkingarinnar í ríkisstjórn virðist hins vegar ætla að standa í vegi fyrir því að þetta mikilvæga frumvarp verði samþykkt, nema þá í útþynntri mynd. Það er svo sem ekki við öðru að búast enda er það ekkert launungarmál að margir fulltrúar Sjálfstæðisflokksins telja að fullu jafnrétti hafi nú þegar verið náð og því séu lögin gagnslaus. Þeir sem á hinn bóginn telja að jafnrétti hafi ekki verið náð, vilja í raun og veru ekki gera neitt þar sem þeir eru vissir um að það muni nást með leiðum hins frjálsa markaðar.

Fyrir liggur að fulltrúar Vinstri grænna og Framsóknarflokksins eru tilbúnir að styðja frumvarpið í óbreyttri mynd. Ábyrgð á framgangi þess hvílir því á fulltrúum Samfylkingarinnar. Nú er því tími til kominn að standa við stóru orðin.

Pétur Blöndal þingmaður Sjálstæðisflokksins spurði að því í fyrstu umræðum frumvarpið á Alþingi hvort félagsmálaráðherra hefði meiri trú á því að troða jafnrétti ofan í kokið á atvinnulífinu en að gera það með frjálsum samningum. Hvar er frelsið í því, mætti spyrja sjálfstæðismenn, að konur komi að lokuðum dyrum í sumum stéttum og þurfi að sætta sig við verri kjör? Ef karl og kona hafa mismikla möguleika á að öðlast tekjur og völd í samfélaginu, þá eru þau ekki jafn frjáls. Þess vegna skerða jafnréttislögin kannski það frelsi sem karlar hafa nú umfram konur, en auka um leið frelsi kvenna til hins sama.

Við erum því miður búin að bíða of lengi eftir því að jafnrétti kynjanna komi af sjálfu sér og viljum ekki bíða lengur. Það er augljóst að fulltrúar Sjálfstæðisflokksins vilja ekki gera neitt til þess að tryggja jafnrétti, bara sitja og bíða. Samfylkingin hefur allt að vinna og nægan stuðning. Stöndum saman – stuðlum að jafnrétti.

Elías Jón Guðjónsson og Erlendur Jónsson
Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu þann 21. desember 2007

Senda grein


Leita á vefnum






 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica