Ung vinstri græn
Pistlar

16.10.2007 Elías Jón Guðjónsson

Raunverulegt aðhald er nauðsynlegt

Í dag tekur nýr meirihluti við völdum í Reykjavíkurborg. Þetta er meirihluti Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, Samfylkingarinnar, Bé-listans og þess sem einhverntíman kallaðist Frjálslyndiflokkurinn.

Ég get ekki með góðri samvisku sagst vera himinnlifandi með þennan meirihluta. Þar með er ekki sagt að ég styðji hann ekki enda er þetta í rauninni eina mögulega meirihlutasamstarfið í boði sem ég get sætt mig við og vissulega kenna þrír af þessum fjórum flokkum sig við félagshyggju. Málið er að ég get bara ekki skyndilega orðið ánægður með fólk eða flokka sem hafa aðra pólitíska sýn en ég bara vegna þess að skipt hefur verið um meirihluta.

Gleðifrétt dagsins er því ekki sú að nýr meirihluti er tekinn við heldur sú að fulltrúar Vinstrihreyfingarinnar ? græns framboðs eru komin í meirihluta. Það eru fulltrúar sem ég á pólitíska samleið með, treysti og trúi á, en ekki skilyrðislaust.

Ung vinstri-græn hafa ekki aðkomu að hinum nýja meirihluta og mun hlutverk Ungra vinstri-grænna verða nú, sem áður, að veita valdhöfunum aðhald, benda á mistök þeirra og gagnrýna þá á uppbyggilegan hátt. Sérstaklega á þetta við þegar að stjórnmálaflokkur sem við tengjumst er kominn til valda eins og nú er orðið í Reykjavík. Þannig getum við verið trú hugsjónum okkar og gert þeim mest gagn.

Ég óska borgarfulltrúum Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í Reykjavík til hamingju með að vera loks komin í þá stöðu að geta komið hinum mikilvægu stefnumálum flokksins í framkvæmd. Ég vil þó minna þau á að fara vel með vald sitt. Í því felst meðal annars að hlusta á alla þá gagnrýni sem þau kunna að fá á störf sín og bregðast við henni á upplýstan og lýðræðislegan hátt. Þeir sem ekki geta tekið gagnrýni og lært af henni hafa ekkert að gera í stjórnmálum.

Elías Jón Guðjónsson

Senda grein


Leita á vefnum






 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica