Á hlöðuloftinu
Í gegnum tíðina hefur ýmislegt verið brallað á hlöðuloftum sveitabæja landsins. Hlöðuloft nokkuð í Eyjafirði sker sig þó algerlega úr hópi annarra slíkra, þar sem að á þessu hlöðulofti er ekki að finna ilmandi hey, baðað í geislum sumarsólarinnar sem finnur veg sinn í gegnum glufur og gáttir og freistar þín til að láta fallast í mjúka breiðuna. Nei, á þessu tiltekna hlöðulofti er lítið um hey, en meira um ís.
Í sérinnréttuðu rými á hlöðuloftinu í Holtsseli í Eyjafjarðarsveit hafa ábúendur framleitt ís síðan vorið 2006. Viðtökur hafa verið vonum framar, og nú ári síðar hefur hlöðunni verið breytt í kaffihús og ísbar af brýnni nauðsyn, þar sem að engin aðstaða var fyrir til að taka á móti þeim fjölda fólks sem sótti bæinn heim til að bragða á ísnum. Þó eru leiðir til að bragða ísinn án þess að leggja leið sína í Holtssel, þar sem að nokkur veitingarhús og verslanir bjóða hann til sölu. Framleiðendurnir anna naumlega eftirspurninni.
Það er farið að færast í aukana að bændur landsins fullvinni vörur sjálfir og selji beint frá býli til neytenda, á sveitamarkaði, í gegnum internetið eða á veitingastaði, en slíkt hefur notið vaxandi vinsælda í nágrannalöndum okkar. Orðið hefur til nýr angi ferðaþjónusta, matarferðaþjónusta, þar sem að matur og matargerðarlist eru notuð sem aðdráttarafl á ferðamenn. Ferðamenn sækjast margir hverjir eftir því að upplifa atvinnuhætti og menningu þess samfélags sem þeir sækja heim, og þannig geta menningararfur og matvælaframleiðsla samantvinnast og myndað kjörin tækifæri fyrir þá sem starfa á einn eða annan hátt við ferðaþjónustu.
Neytendur gera sífellt meiri kröfur til gæða og öryggis þeirra vöru sem þeir kaupa og þess að upplýsingar um uppruna þeirra séu aðgengilegar. Með því að kaupa mat beint frá býli fær neytandinn tækifæri til að kynna sér uppruna vörunnar, umhverfið og framleiðandann. Í þessu felst aukið frelsi fyrir framleiðendur og ekki síður neytendur, sem verða meðvitaðri um neyslu sína þegar þeir fara að kynna sér við hvers konar aðstæður neysluvörur þeirra eru unnar. Það er mikilvægt að neytendur verði meðvitaðri um vald sitt og valkosti, og kjósi í auknum mæli vörur hvers gæði eru ekki einungis metin útfrá bragði eða kaupverði, heldur einnig útfrá heilsufarslegum, umhverfislegum og siðferðislegum þáttum.
Ljóst er að hér leynast áhugaverð tækifæri til tekju og atvinnusköpunar fyrir bændur. Gæðamerkið „Beint frá býli“ er orðið skrásett vörumerki og gæðamerki fyrir matvörur sem sveitabýli framleiða úr eigin hráefni á býlinu og selja beint til neytanda. Mörg farsæl fyrirtæki í heimaframleiðslu hafa þegar rutt sér rúms á matvæla- og ferðaþjónustumarkaði. Það er mikilvægt að áfram verði stutt við nýsköpun og hugvit á þessu sviði, til að stuðla að fjölbreyttu atvinnulífi, öflugum landbúnaði og blómlegum byggðum um landið allt.
