Ung vinstri græn

Pistlar

28.5.2007 Þórhildur Halla Jónsdóttir : Róttæklingar allra landa sameinist!

Um síðustu helgi var ég þess heiðurs aðnjótandi að fá að vera erlendur gestur á landsfundi finnskra byltingarfélaga minna. Vasemmistonuoret er pólitísk samtök ungra vinstrisinna og róttækra sósíalista í Finnlandi. Vasemmistonuoret er nokkurs konar vinafélag og samherjar okkar í Ungum Vinstri-Grænum.

Lesa meira
 

23.5.2007 Steinunn Rögnvaldsdóttir : Typpapólitíkin í Sjálfstæðisflokknum

Í gær lýsti Ingibjörg Sólrún Gísladóttir því yfir að Samfylkingin ætlaði sér að standa við landsfundarsamþykkt sína og gæta jafnræðis milli kynjanna á ráðherrastólum þeim sem flokkurinn fengi í sinn hlut. Lesirðu frétt sem slíka á fréttasíðunni mbl.is, er óhjákvæmilegt að þú rekist á athugasemdir meðlima alræmds þjóðfélagshóps sem í daglegu tali eru nefndir „Moggabloggararnir“.

Lesa meira
 

9.5.2007 Steinunn Rögnvaldsdóttir : Kjósum jafnrétti!

Á síðasta kjörtímabili hafa þingmenn Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs lagt fram fjöldan allan af frumvörpum til að stuðla að jafnrétti kynjanna og kvenfrelsi. Því miður er af nógu að taka í þeim málaflokki. Sem dæmi má nefna að kynbundinn launamunur hefur ekkert minnkað í 13 ár, dómar fyrir kynferðisafbrot eru í engu samhengi við alvarleika brotanna.

Lesa meira
 

9.5.2007 Auður Lilja Erlingsdóttir : Hver er grænn í gegn?

Sigurður Kári Kristjánsson, er staðalímynd hins unga sjálfstæðismanns. Hann er karlmaður í flottum jakkafötum en fyrir sakir óþarflega mikils hroka kemur hann ekkert sértaklega vel fyrir. Hann svarar aldrei spurningum eða gagnrýni sem að honum er beint. Í stað þess bregst hann nær alltaf við með spurningum sem hafa lítið eða ekkert með málin að gera.

Lesa meira
 

Leita á vefnum






 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica