Ung vinstri græn
Pistlar

28.4.2007 Steinunn Rögnvaldsdóttir

Hræðsluáróður ríkisstjórnarflokkanna

Þann 12. maí næstkomandi fæ ég að kjósa í Alþingiskosningum í fyrsta sinn. Ég tilheyri þeirri kynslóð sem man ekki eftir lífinu öðruvísi en þannig að Sjálfstæðisflokkurinn hafi verið í ríkisstjórn. Sjálfstæðismenn settust á valdastól árið 1991, fyrir 16 árum, og hafa setið sem fastast síðan. Framsóknarflokkurinn var reyndar ekki með í þeirri ríkisstjórn, en það er líka eina ríkisstjórnin sem þeir hafa ekki verið með í síðustu 27 ár.

Það er eðlilegt að framþróun í samfélaginu eigi sér stað, en varhugavert þegar að flokkar sem hafa einokað valdastólinn vilja taka til sín allan heiðurinn af framþróuninni. Enn varhugaverðara er það þegar að talsmenn sömu flokka halda því fram að framþróun stöðvist fái þeir ekki endurnýjað umboð til að halda um stjórnartaumana í landinu. En á þessum hræðsluáróðri keyra nú Sjálfstæðismenn og Framsóknarmenn.

Hræðsluáróður er ógeðslegt en áhrifaríkt fyrirbæri. Ég, sem hef í áraraðir vitað hvar ég stend í pólitík, kemst ekki hjá því að fá samviskubit þegar ég hlýði á frambjóðendur ríkisstjórnarflokkanna á framboðsfundum. Hef ég það ekki gott? Er það ekki þeim að þakka, þeir eiga jú heiðurinn að framþróuninni! Og ætla ég svo að dirfast að kjósa þá ekki til áframhaldandi valda á Íslandi? Hvernig get ég verið svona vanþakklát? Af hverju ætla ég ekki að kjósa annan hvorn ríkisstjórnarflokkinn?

Jú, vegna þess að ég bý í landi þar sem er í lagi að kaupa líkama annarrar manneskju. Ég bý í landi sem studdi og styður enn hörmulegt stríð í Írak sem hefur gert heiminn að hættulegri stað en ekki öfugt. Ég bý í landi þar sem ríkisstjórnin vinnur að því að sökkva náttúruperlum í þágu stóriðju, hinnar einu sönnu framþróunar. Ég bý í landi þar sem menntamálaráðherrann vill skerða nám til stúdentsprófs og einsleitni einkennir skólakerfið. Ég bý í landi þar sem er um 16 % óútskýrður kynbundinn launamunur. Ég bý í landi þar sem allir eru orðnir svo vanir því að ríkisstjórnin reddi vinum sínum og flokksfélögum fín djobb burtséð frá hæfni þeirra, að fólk er nánast hætt að sjá hversu ósiðlegt það er. Og ég bý í landi þar sem að ríkisstjórnin sem er við völd ætlar ekki að gera rassgat til að snúa við blaðinu í ofangreindum dæmum.

Þess vegna vil ég skipta um ríkisstjórn. Þess vegna hafna ég hræðsluáróðri ríkisstjórnarflokkanna og þeim líka. Þess vegna ætla ég að kjósa flokk sem vill skynsamlega nýtingu náttúruauðlinda og vernda náttúruperlur, vinna að jafnrétti kynjanna í stað þess að vona bara að það komi að sjálfu sér, og byggja upp öflugt velferðakerfi þar sem að jöfnuður ríkir í samfélaginu. Þess vegna ætla ég að kjósa Vinstri græn í vor.

Steinunn Rögnvaldsdóttir

Senda grein

Athugasemdir (3)

  1. flouck skrifar:

    health insurance >:OOO health insurance 561 auto insurance rates 413 auto insurance klx auto insurance quotes 0551

    9.5.2010, kl. 1:28 | #

  2. tipsydesi skrifar:

    cialis bvbhs taking ultram and lexapro together \=((( propecia results clq prednisone \=( buy accutane online 050 order phentermine online uer

    23.5.2010, kl. 19:53 | #

  3. dinkwinkerson skrifar:

    equity business loans jetl mid back pain exercise \=)) machine progressive slot 3350 weaning xanax 783

    8.8.2010, kl. 9:40 | #

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)

Ung vinstri græn þiggja með þökkum athugasemdir við alla pistla en óska þess að athugasemdir séu málefnalegar. Allar athugsemdir eru á ábyrgð höfundur en Ung vinstri græn áskilja sér þó rétt til þess að fjarlægja athugasemdir sem þau telja ekki hæfar til birtingar.



Leita á vefnum



Eldri pistlar


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica