Ung vinstri græn
Pistlar

24.4.2007 Brynja Björg Halldórsdóttir

Um vistvernd

Náttúran er uppspretta lífsgæða okkar. Mannkyninu ber réttur til að lifa heilbrigðu og auðgandi lífi í sátt við náttúruna. Það hefur rétt til þróunar sem kemur af sanngirni til móts við umhverfis- og þróunarþarfir núlifandi og komandi kynslóða. Við fengum náttúruna ekki í arf frá forfeðrum okkar heldur fengum við hana að láni frá afkomendum okkar. Það er skylda okkar að skila þeim náttúrunni í a.m.k. jafngóðu ástandi og þegar við tókum við henni.

Hvað er vistvernd?
Vistvernd gengur í stuttu máli út á að breyta á einfaldan hátt ýmsum venjum í daglegu lífi án þess að draga úr lífsgæðum í þágu náttúrunnar.Vistvernd er s.s. tæki til að ná fram umhverfislegum ávinningi. Hún stuðlar að bættri nýtingu náttúruauðlindanna, takmarkar mengun og dregur úr álagi á umhverfið. Á hverjum degi fellur ýmislegt til á heimilum landsmanna sem endar í ruslatunnunni og í því felst mikill fjárhagslegur kostnaður. Með því að flokka og endurvinna sorp minnkar það sorpmagn sem þarf að urða og felst í því bæði beinn sparnaður og minna álag á náttúruna.

Hvað er hægt að gera?
Umhverfismál eru ekki einkamál ákveðinna félagssamtaka, heldur mál okkar allra. Með fyrirferðarlitlum breytingum á daglegu lífi er hægt að lyfta grettistaki, margt smátt gerir eitt stórt. Reynslan sýnir að vistvænir lífshættir leiða einnig til fjárhagslegs sparnaðar, bæði fyrir samfélagið sem og þær fjölskyldur og fyrirtæki sem í hlut eiga.

Örfá dæmi af mörgum um það sem hægt er að gera er að:

  • Aka minna, ganga t.d. eða hjóla þegar farnar eru stuttar vegalengdir
  • Samnýta ferðir sem eknar eru í bíl. Vera t.d. samferða í vinnuna.
  • Aka samkvæmt leiðbeiningum um vistakstur (www.ecodriving.org).
  • Kaupa sparneytnasta farartækið sem uppfyllir þarfirnar.
  • Viðhalda farartækinu vel og vélarstilla.
  • Skipuleggja ferðir vel því köld bílvél mengar margfalt meira en heit.
  • Láta setja hreyfilhitara í bílinn.
  • Láta bílinn ekki ganga í lausagangi.
  • Fjarlægja allt af bílnum sem þyngir hann eða eykur loftmótstöðu hans, til að mynda þakgrindina þegar hún er ekki í notkun.
  • Halda jöfnum hraða í akstri.
  • Aka í hæsta mögulega gír.
  • Hafa réttan loftþrýsting í hjólbörðum.
  • Kaupa vörur sem er fluttar stuttar vegalengdir (veljum t.d. íslenskt).
  • Láta gera við biluð tæki, tól og dót, fremur en að kaupa nýtt.
  • Forðast að kaupa vörur í miklum umbúðum.
  • Auka hlutfall umhverfismerktra vara í innkaupakerrunni.
  • Nota taupoka, afþakka óþarfa plastpoka og nýta þá plastpoka sem við eigum.
  • Jarðgera lífrænan úrgang. Við urðun hans myndast mikið magn metans, en sú lofttegund á stóran þátt í auknum gróðurhúsaáhrifum.
  • Nota svokallaðar „sparperur„ í stað glópera, en þær endast 7 sinnum lengur og eyða 7 sinnum minni orku.
  • Setja allt í endurvinnslu sem hægt er að endurvinna. Þegar við endurvinnum fer minna sorp í urðun og við spörum náttúruauðlindir eins og tré , olíu og málma.

Vinstrihreyfingin - grænt framboð hefur gefið út ritið Græn framtíð um sjálfbæra þróun. Sjálfbær þróun snertir samfélagið allt og snýst um siðferðilega afstöðu stjórnvalda og almennings til samfélags og umhverfis. Þegar ákvarðanir eru teknar í samfélagi, sem stefnir í átt til sjálfbærrar þróunar, ber að leggja áherslu á samspil vistfræðilegra, samfélagslegra og efnahagslegra þátta. Græn framtíð hefur að geyma stefnumörkun Vinstri grænna til næstu ára um sjálfbæra samfélagsþróun jafnframt því sem skyggnst er lengra fram á veg.

Það er vistvernd í verki að kjósa Vinstri græn.

Brynja Björg Halldórsdóttir

Senda grein


Leita á vefnum






 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica