Beint í leiðarkerfi vefsins.
Þann 12. maí næstkomandi fæ ég að kjósa í Alþingiskosningum í fyrsta sinn. Ég tilheyri þeirri kynslóð sem man ekki eftir lífinu öðruvísi en þannig að Sjálfstæðisflokkurinn hafi verið í ríkisstjórn. Sjálfstæðismenn settust á valdastól árið 1991, fyrir 16 árum, og hafa setið sem fastast síðan. Framsóknarflokkurinn var reyndar ekki með í þeirri ríkisstjórn, en það er líka eina ríkisstjórnin sem þeir hafa ekki verið með í síðustu 27 ár.
Lesa meiraÞann 18. mars sl. lauk vorþingi Alþingis, án þess að frumvarp um viðurkenningu íslenska táknmálsins sem fyrsta máls heyrnarlausra, heyrnarskertra og daufblindra fengi afgreiðslu úr menntamálanefnd. Þrisvar sinnum hefur samskonar frumvarp dagað uppi í nefnd, þrátt fyrir yfirlýstan vilja þingmanna úr öllum stjórnmálaflokkum til að afgreiða frumvarpið nú í vor.
Lesa meiraNáttúran er uppspretta lífsgæða okkar. Mannkyninu ber réttur til að lifa heilbrigðu og auðgandi lífi í sátt við náttúruna. Það hefur rétt til þróunar sem kemur af sanngirni til móts við umhverfis- og þróunarþarfir núlifandi og komandi kynslóða. Við fengum náttúruna ekki í arf frá forfeðrum okkar heldur fengum við hana að láni frá afkomendum okkar. Það er skylda okkar að skila þeim náttúrunni í a.m.k. jafngóðu ástandi og þegar við tókum við henni.
Lesa meiraStundum finnst mér Ísland, eða öllu heldur Íslendingar, vera eins og örverpi í fjölskyldu. Örverpi sem er vant því að flest sé látið eftir því. Okkur finnst í mörgum tilfellum að við höfum sérstöðu vegna þess að við erum bara 300.000 manns og þess vegna eigi að gilda aðrar reglur um okkur en hina. Þetta sýnir sig t.d. í loftslagsmálum.
Lesa meiraRúmar fimm vikur eru til Alþingiskosninga og línur farnar að skýrast. Vinstrihreyfingin - grænt framboð leggur áherslu á umhverfisvernd, félagslegt réttlæti, friðarstefnu og stöðugt efnahagslíf sem hvílir á fjölbreyttu atvinnulífi. Öll miða þessi stefnumál að því að bæta lífsgæði okkar allra sem og komandi kynslóða. Þessar línur hafa reyndar alltaf verið skýrar og koma því engum á óvart. Það sama verður varla sagt um þá flokka sem stjórnað hafa landinu undanfarin 12 ár.
Lesa meira