Beint í leiðarkerfi vefsins.
Um daginn sýndi Ríkissjónvarpið mjög svo áhugaverða og fræðandi heimildarmynd. Þó að þessi mynd hafi verið áhugaverð þá var hún hvorki skemmtileg né aðlagandi á neinn hátt. Hún var skelfileg, sjokkerandi og vakti með manni erfiðar tilfinningar og vanlíðan þó að markmið hennar hafi aðallega verið að fletta ofan a hræðilegum sannleika og draga hann fram í sjónarhornið fyrir okkur að horfast í augu við.
Lesa meiraÍ könnun sem Fréttablaðið gerði á dögunum kom margt áhugavert í ljós. Spurt var hvaða flokk viðmælendur mynda kjósa í næstu alþingiskosningum, úrtakið var 800 manns og svarhlutfallið voru tæp 58%. Í ljós kom að Sjálfstæðisflokkurinn fengi 40,2% atkvæða og 26 þingmenn, Framsókn fengi 7,4% atkvæða og 4 þingmenn, Frjálslyndir fengu 10% atkvæða og 6 þingmenn, Samfylkingin fengi 21,2% og 14 þingmenn en Vinstri græn fengu 19,4% atkvæða og 12 þingmenn væri gengið til kosninga nú.
Lesa meiraSú skoðun að íslenska krónan sé úrelt og ónýt verður sífellt víðteknari í þjóðfélaginu. Sífellt fleiri stórfyrirtæki og bankar hafa tekið upp eða hyggjast taka upp evru hennar í stað. Örfá fyrirtæki hafa tekið upp bandaríska dollara. Eins og flestir vita er verðbólga á Íslandi er nú 7% og stýrivextir 14,25% en sagan sýnir okkar að þeir hafa frekar takmörkuð áhrif á þróun verðbólgunnar.
Lesa meiraFrá því að áramótapistill vefritsins Múrsins birtist hafa höfundar pistilsins verið gagnrýndir harðlega fyrir einn af þeim bröndurum sem þar kemur fyrir. Þar geigar skot Múrverja sem beinast átti að Jóni Baldvini Hannibalssyni og bókmenntagagnrýni hans á ævisögu Margrétar Frímannsdóttur.
Lesa meira